Tölvumál - 01.01.2016, Síða 30
30
Í íbúðinni til hægri er svipað uppi á teningnum. Með hefðbundnu leiðinni,
sýnd á mynd 5, nær merkið inn í íbúðina við hliðina en eitt herbergi, við
enda gangsins, er útundan. Með nýja kerfinu er hægt að takmarka aflið,
og útsendinguna, að miklu leyti innan íbúðarinnar en með forhönnuninni
kemur fram að til að ná til endaherbergisins þarf tvo aðgangsstaði í
íbúðinni. Það má sjá á mynd 6.
DREIFING FRÁ STIGAGÖNGUM
Einn forvitnilegur vinkill er á þessum vangaveltum. Ef aðgangsstaður
væri staðsettur í loftinu á hverjum stigapalli í stigagöngunum til vinstri og
í miðjunni vill svo til að merkið myndi ná vel inn í íbúðirnar til beggja
handa á 2,4 GHz og þokkalega á 5 GHz. Þannig þyrfti aðeins þrjá
aðgangsstaði til að sinna sex íbúðum í þriggja hæða stigagangi og
óverulegar líkur á að rásir skarist með notkun 2,4 GHz bandsins. Það er
í tilfellinu með stigaganginn lengst til hægri þar sem svona lausn gengur
ekki. Of „djúpt“ er inn í herbergin í mestri fjarlægð frá aðgangsstaðnum
á stigapallinum.
Mynd 7 – dreifing frá aðgangsstöðum á stigagöngunum.
Mynd 8 – sendisvið hvers aðgangsstaðar á stigapalli.
Ef hver aðgangsstaður á stigapalli er skoðaður í forhönnuninni, á mynd
8, sést að merkið nær vel inn í íbúðirnar til beggja handa en veggirnir
milli stigaganganna beggja megin mynda „skjól“ svo merkið berst ekki
lengra, og þar af leiðir má endurnýta rásirnar í hinum stigagöngunum.
Deyfing er því ekki alltaf til ills og kemur sér vel hér til að mögulegt sé að
endurtaka rásir án þess að þær lendi saman.
Dæmin hér á undan eru gerð með forhönnunarhugbúnaði Verkís sem
gerir mögulegt að sjá fyrir útkomuna á þráðlausum netum. Fjöldamargar
breytur og stillingar eru mögulegar, bæði varðandi byggingaefni,
húsbúnað, fjölda hæða, tegund húsnæðis og mannfjölda auk tæknilegra
eiginleika aðgangsstaðanna og þannig hægt hvort sem er að hanna ný
net í eldra húsnæði, eða taka út eldri net til að kanna ástand þeirra og
hæfileika við breytt hlutverk.
UTMESSAN 2017 Í HÖRPU
Föstudaginn 3. febrúar:
ráðstefna og sýning fyrir tölvufólk
Laugardaginn 4. febrúar:
sýning og fræðsla fyrir alla
TAKIÐ DAGANA STRAX FRÁ!
Tilgangur UTmessunnar er að vekja athygli á mikilvægi upplýsingatækninnar og áhrifum
hennar á einstaklinga, fyrirtæki og íslenskt samfélag.
Markmiðið er að sjá marktæka fjölgun nemenda sem velja tæknigreinar í háskólum landsins.
Einnig viljum vekja áhuga almennings á upplýsingatækni og mikilvægi hennar á öllum sviðum
daglegs lífs.
Fylgstu með á UTmessan.is - Facebook UTmessan – Twitter UTmessan