Tölvumál - 01.01.2016, Side 32

Tölvumál - 01.01.2016, Side 32
32 Tilgangur langtímavarðveislu opinberra rafrænna gagna er fyrst og fremst til þess að styrkja upplýsingarétt almennings sem og gagnsæi í stjórnsýslunni. Rafræn gögn samtímans eru jafnmikilvæg sögu þjóðarinnar og eldri gögn. Skilgreiningu á skjali má finna í 2. gr. laga um opinber skjalasöfn en þar segir að skjal sé „Hvers konar gögn, jafnt rituð sem í öðru formi, er hafa að geyma upplýsingar og hafa orðið til, borist eða verið viðhaldið við starfsemi á vegum stofnunar eða einstaklings.“ [1]. Rafræn gögn þurfa að uppfylla þau skilyrði að innihald, samhengi og uppbygging þeirra sé þannig að þau veiti upplýsingar og sönnun um þá starfsemi sem þau urðu til í [2]. Þau skal varðveita á rafrænu formi því við útprentun takmarkast mjög leitarmöguleikar sem til staðar eru í rafrænum kerfum. UPPHAF RAFRÆNNAR VARÐVEISLU Þann 15. september 1997 skipaði menntamálaráðherra nefnd sem hafði það hlutverk að „gera tillögur um reglur um tegundir tölvugagna sem falla skuli undir skilaskyldu til Þjóðskjalasafns eða héraðsskjalasafna, reglur um varðveislu tölvugagna hjá upphafsaðila, geymsluform gagna, skilatíma gagna til Þjóðskjalasafns og varðveisluskilyrði og hvernig búa skuli geymsluhúsnæði í Þjóðskjalasafni.“ [3]. Nefndin átti að gera kostnaðaráætlun við að koma upp aðstöðu til langtímavarðveislu rafrænna gagna á Þjóðskjalasafni Íslands. Gekk nefndin út frá því að skjalavarsla opinberrar stjórnsýslu myndi á næstu árum og áratugum þróast í átt til rafrænnar vörslu gagna sem í kjölfarið myndi þýða minni áherslur á hefðbundin pappírsskjalasöfn. Nefndin kannaði aðstæður þessara mála hjá nágrannaríkjum Íslands og kom í ljós að Ríkisskjalasafn Danmerkur hafði nýlokið vinnu við að skipuleggja langtímavörslu tölvugagna. Ísland var talsvert á eftir nágrannaríkjunum í langtímavarðveislu rafrænna gagna. Algengt var að gögn væru unnin í tölvu án þess að prentað væri út. Samið var við Ríkisskjalasafn Danmerkur um að Þjóðskjalasafn Íslands myndi nota aðferðafræði og reglur frá ríkisskjalasafninu og hafa afnot af þeim hugbúnaði sem þróaður var til verksins auk þjálfunar í notkun hugbúnaðarins. Í rúman áratug eftir að nefndin var skipuð vann Þjóðskjalasafn Íslands að undirbúningi viðtöku og langtímavörslu rafrænna gagna. Þjóðskjalasafn setti fyrstu reglur um varðveislu rafrænna gagna 1. ágúst 2009 og var þá formlega tilbúið til þess að taka á móti rafrænum gögnum til langtímavarðveislu [4]. AÐFERÐAFRÆÐIN Þjóðskjalasöfn heimsins hafa á síðustu áratugum þróað mismunandi aðferðir til að tryggja varðveislu og aðgengi að rafrænum gögnum til framtíðar. Aðferðin sem Þjóðskjalasafn Íslands notar gengur út á að umbreyta skráarsniðum upprunalegu gagnanna yfir á skráarsnið sem notuð eru til langtímavarðveislu samkvæmt opinberum stöðlum og kallast sú aðferð umbreytingaraðferðin (e. migration). Ástæða þess að valin var sú leið að umbreyta gögnum er m.a. að framleiðendur halda hugbúnaði aðeins við í skamman tíma vegna hraðrar þróunar sem getur haft þær afleiðingar að gögn verða ólæsileg eða jafnvel breytast þegar nýrri útgáfur hugbúnaðar koma út. Mynd 1 er dæmi um líftíma hugbúnaðarins Microsoft Word. Almennt er talið að hagstæðasta leiðin til varðveislu rafrænna gagna sé umbreyting yfir á skráarsnið sem eru samkvæmt opnum alþjóðlegum stöðlum og eru mikið notuð á hverjum tíma. Þá er hægt, þegar þörf er á, að endurheimta rafræn gögn sem vistuð hafa verið í samræmi við tiltekinn staðal. Ef að skrársnið eru lokuð eða óþarflega flókin gætu komið upp vandamál að sannreyna og umbreyta þeim. Áhættan á hugsanlegum villum myndi aukast. Samkvæmt reglum Þjóðskjalasafns Íslands skal afhenda vörsluútgáfu gagna til safnsins en vörsluútgáfa kallast rafræn afhending. Einungis verða varðveitt gögn úr rafrænum skjalavörslukerfum og gagnagrunnum en ekki kerfin sjálf (sjá Mynd 2 ). Einungis verða varðveitt gögn úr rafrænum skjalavörslukerfum og gagnagrunnum en ekki kerfin sjálf. Því þarf að færa skjölin úr kerfunum yfir á tiltekið form, sbr. reglur Þjóðskjalasafns. RAFRÆN STJÓRNSÝSLA – LANGTÍMA VARÐVEISLA Á RAFRÆNUM GÖGNUM Mynd 1: Líftími hugbúnaðar, Microsoft Word S. Andrea Ásgeirsdóttir og Garðar Kristinsson, skjalaverðir á Þjóðskjalasafni

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.