Tölvumál - 01.01.2016, Side 34
34
Planning Poker hefur átt upp á pallborðið í hugbúnaðargerð með Scrum
aðferðafræðinni og þar hefur leikurinn einnig verið kallaður Scrum
Poker. Leikreglurnar geta skolast til og sú staða komið upp að aðferðin
sé ekki er notuð rétt sem leiðir til óánægju með að meta verkefni. Því er
gott að rifja leikinn upp reglulega og fara yfir “leikreglurnar” til að sjá
hvort það sé eitthvað sem megi leiðrétta.
HVAÐ ER PLANNING POKER
Planning Poker er aðferð, eða leikur, til að fá sameiginlegt mat á stærð
verkefnis með því að búta það niður í hluta, meta hvern og einn og enda
með heildarmat. Matið auðveldar áætlanagerð og mælingar á framgangi
verkefnisins á verktíma. Matið fer þannig fram að hverjum hluta gefin
eining sem við köllum punkta (einnig kallaðir sögupunktar (e. Story
Points)). Þessir punktar eru aðeins hugsaðir til að flokka miðað við aðra
hluta í verkefninu með einingum sem ekki tengist tímatali í klukkutímum
eða dögum. Þannig frelsum við alla frá því að hugsa um tíma og getum
einbeitt okkur að því að njóta þess að spila leikinn.
HVERNIG ER PLANNING POKER SPILAÐUR?
Allir leikmenn hittast og fá spil sem yfirleitt hafa tilteknar tölur, til dæmis
0, 1, 2, 3, 5, 8, 13, 20, 40, 100. Þetta er aðferð til að fá hlutana flokkaða
í tiltekna stærðir sem eru takmarkaðir af þeim spilum sem eru notuð.
Einnig er hægt að spila með færri stærðir til að meta grófar og hraðar,
eða til dæmis meta aðeins í þremur stærðum: Lítið, Miðlungs og Stórt.
Í upphafi er einn hluti valinn sem grunnur og honum gefinn punktafjöldi
sem allir eru sammála um. Passið hér að velja auðskilinn hluta, sem lítil
sem engin óvissa er um, þannig að grunnurinn sem upphaflega er
miðað við sé góður.
Þá er hægt að byrja að spila:
1. Hluti sem á að meta er útskýrður og rætt um hann
munið að taka inn sjónarmið allra
2. Allir velja spil
miðað við þá hluta sem liggja fyrir og er búið að meta
3. Allir sýna samtímis
passið að allir séu tilbúnir áður en að byrjað er að sýna svo
enginn velji út frá hinum
4. Ef allir eru með sama matið þá er sameiginlegt mat á þeim
hluta komið
annars er mismunurinn ræddur og spilað aftur þar til allir eru
sammála
HVAÐ SVO?
Heildarmat verkefnisins liggur nú fyrir og þegar byrjað er að vinna í
verkefninu lærist hversu hratt punktarnir klárast. Hraðinn sem að
punktarnir klárast, eða vinnuhraðinn er kallaður brennsla (e. Velocity).
Brennslan er mæld á tilteknum tímabilum. Í upphafi er hægt að giska á
hana en síðan liggur hún fyrir í lok hvers tímabils og meðaltal myndast
með tímanum sem verður sú brennsla sem hægt er að miða við.
Nýjir hlutar geta bæst við verkefnið og þá er gott að nota alltaf sömu
aðferð við að meta og áður því þá er samræmi í matinu á öllum hlutum.
Með heildarmati (ásamt nýjum hlutum) og brennslu er hægt að fylgjast
með framvindu verkefnisins og bregðast við ef þarf út frá þeim
upplýsingum.
HVAÐ SKAL VARAST?
• Ekki nota stærðareiningu sem hefur beina tilvísun í raunverulega
vinnu, t.d. klukkutíma eða daga. Við viljum geta spilað leikinn án
þess að vera að hugsa hversu mikinn tíma hlutar taka.
• Best er að meta aðeins eitt verkefni í einu og leyfa þeim
punktum að vera óháðum öðrum verkefnum. Ef samræma á
mat milli verkefna, eða spila um mörg verkefni í einu, reynið þá
að passa að notast við eins líkan grunn til viðmiðunar eða miða
við hluta úr því verkefni sem er verið að samræma við í upphafi.
• Ekki velja stóra eða flókna sögu sem grunn því að mikilvægt er
að allir nái utan um að skilja grunnsöguna þannig að matið á
henni sé nokkuð skýrt í hugum allra.
• Ekki endurmeta sögur með annarri aðferð ef eitthvað er ekki að
ganga upp á verktímanum, metum alltaf miðað við aðra
verkhluta til að halda samræmi milli hvernig allt var metið.
SPILAR ÞÚ PLANNING
POKER LEIKINN?
Logi Helgu, ScrumMaster hjá Novomatic Lottery Solutions
Formaður Agile Netsins
agile.logihelgu.com