Tölvumál - 01.01.2016, Blaðsíða 37
37
HVERNIG NÁLGUMST VIÐ UPPLÝSINGARNAR
OG BIRTUM ÞÆR ?
Til að veita aðgang að upplýsingum um staðsetningu þarf til viðbótar,
kerfi sem safnar þeim saman. Þetta kerfi þarf kort af fyrirtækinu og
upplýsingar um staðsetningu á þráðlausum sendum innan þess. Kerfið
safnar upplýsingum um notendur sem tengjast netinu ásamt umferð
um þráðlausu sendana. Helstu áskoranir við að mata kerfið með réttum
upplýsingum eru hlutföll í teikningum og rétt staðsetning senda á korti.
Hér að ofan höfum við heildarmyndina. Sendarnir eru staðsettir í
hornum og miðju svæðis. Meiri nákvæmni á staðsetningu fæst með því
að fjölga sendum ásamt því að aukinn gagnaflutningur næst. Dæmigerð
nákvæmni er á bilinu 5 til 9 metrar, sem dugar yfirleitt í stórum
byggingum. Ef þörf er á meiri nákvæmni þá bjóða framleiðendur á borð
við Cisco uppá sérstakt loftnet sem viðbót á sendana sem gefur
nákvæmni upp á allt að 1 meter.
Til að einfalda utanumhald á þráðlausum sendum er notuð miðlæg
stýring (e. Wireless controller). Sú stýring getur annaðhvort verið vistuð
á staðarneti eða í skýinu (e. Cloud based) og fer eftir þarfagreinginu og
öryggissjónarmiðum hvers fyrirtækis ásamt fleiru.
Síðasta púslið er kerfi sem notað er til að lesa gögnin og birta þau.
Upplýsingar um notendur koma frá miðlægu stýringunni, hvar þeir
tengjast og hverjir þeir eru, og er safnað saman í þetta kerfi. Þessar
upplýsingar er hægt að nálgast á tiltölulega einfaldan hátt og birta í
tilbúnum lausnum.
VIÐVERUKERFI FYRIRTÆKIS SEM NOTAR
STAÐSETNINGU TIL UPPLÝSINGA
Hér er tekið dæmi um fyrirtæki sem nýtir sér staðsetningu til aukinnar
framleiðni starfsmanna
Upplýsingar um viðveru starfsmanna eru að finna á ýmsum stöðum.
Gallinn við margar þeirra er að þær eru statískar og oft settar inn
handvirkt af starfsfólkinu sjálfu. Í þessu dæmi er tæknin nýtt til að birta
sjálfkrafa, upplýsingar um viðveru fólks, t.d. hvort það er á svæðinu eða
ekki. Þó er ekki verið að eltast við nákvæma staðsetningu á starfsmanni.
Upplýsingar um tengimöguleika við starfsmann koma einnig fram, svo
sem staða úr dagbók (e. Calendar) og hvort viðkomandi er laus í
textaspjall eða símtal. Einnig getur starfsmaður sett handvirkt inn
textastöðu til frekari upplýsinga. Útkoman er sú að allar upplýsingar um
stöðu starfsmanna eru aðgengilegar á einum stað sem uppfærist
sjálfkrafa. Þetta getur sparað starfsfólki mikinn tíma í dagsins önn.
ÞJÓNUSTUFYRIRTÆKI SEM BÝÐUR FRÍA
NETTENGINGU Á STAÐNUM
Hotspot eða frítt WiFi er algeng aukaþjónusta við viðskiptavini, t.d. á
hótelum, í skólum og verslunarmiðstöðvum. Staðsetningartæknin getur
veitt mikilvægar upplýsingar um stöðuna á slíkum kerfum, ásamt því að
afla upplýsinga um staðsetningu viðskiptavina.
Hægt er að nýta samfélagsmiðla á borð við Facebook til að auðkenna
notendur og fá þannig persónubundnar upplýsingar. Þannig gæti
verslunarmiðstöð t.d. séð hvaða svæði eru vinsælust eftir aldurshópum.
Kerfið getur sýnt myndrænt, álagspunkta á þráðlausa netinu eftir tíma
dags. Einnig er hægt að spila í gegnum daginn og sjá þannig flæði
notenda, hvert þeir fara og hvar þeir hópast saman.
HVAÐ MEÐ PERSÓNUVERNDARSJÓNARMIÐ?
Eins og dæmin sýna er hægt er að nýta þessa tækni í ýmsum tilgangi.
Skoða þarf vel lagalegu hliðina áður en farið er í slíka uppsetningu.
Notendur þurfa að vera upplýstir (e. Disclaimer) um hvers konar
gagnaöflun sé í gangi og þeim gefinn kostur á að bregðast við.
GETUM VIÐ STAÐSETT ÓTENGDA NOTENDUR?
Gagnaöflun kerfisins er ekki takmörkuð við þá sem tengjast því.
Dæmigerð snjalltæki eru alltaf að leita eftir tengimöguleikum (e. Probing)
og sjást þannig í kerfinu. Kerfið sér „mac address“ á þessum tækjum og
hefur því möguleika á að nýta þær upplýsingar til að telja heimsóknir (e.
Returning visitors). Sumir framleiðendur á borð við Apple fela „mac
address“ tækisins þannig að það birti tilviljanakenndar upplýsingar (e.
random mac address). Þessi virkni ruglar slík kerfi og er oft hunsuð þar
til að tækið tengist. Þá birtist hin raunverulega „mac address“ sem er
brennimerkt í netkort tækisins og alltaf sú sama.
HVAÐ FLEIRA ER HÆGT AÐ GERA VIÐ
UPPLÝSINGAR UM STAÐSETNINGU?
Dæmi um skemmtilega notkun:
• Hægt væri að kveikja ljós sjálfkrafa þegar tengdur notandi kemur
inn í ákveðið rými.
• Stórmarkaður gæti sent textaskilaboð á verslunarstjóra þegar
langar biðraðir myndast við afgreiðslukassa.
• Starfsmaður fær skilaboð um sendingu sem bíður hans í
móttöku þegar hann mætir á staðinn ef hann var ekki við þegar
sendingin barst.
Möguleikarnir eru endalausir og takmarkast eingöngu við hugmynda
flugið.