Tölvumál - 01.01.2016, Side 38
38
UTverðlaun Ský 2016 voru afhent í lokahófi UTmessunnar laugardaginn
6. febrúar í Hörpu.
Valnefndin hafði að leiðarljósi að verðlaunin væru veitt fyrir framúrskarandi
framlag á sviði upplýsingatækni, sem skapað hefur verðmæti og
auðgað líf Íslendinga með hagnýtingu á upplýsingatækni. Áhersla er
lögð á að framlagið hafi þegar sannað sig með afgerandi hætti.
Að verðlauna þau afrek sem unnin hafa verið hjá embætti ríkisskattstjóra
undanfarin ár er ekki hægt án þess að nefna Skúla Eggert Þórðarson í
sömu andrá. Þess vegna var tekin sú ákvörðun að veita UTverðlaunin
til Skúla sem persónu og einnig embættinu sem slíku.
Skúli Eggert Þórðarson var skipaður ríkisskattstjóri frá 1. janúar 2007
og á þeim 9 árum sem hann hefur gegnt embættinu hefur hann verið
drifkraftur í að koma í gegn mörgum stórum málum á sviði rafrænna
lausna. Skúli Eggert er lögfræðingur að mennt og starfaði hjá RSK á
árunum 1983 – 1993, var skattrannsóknarstjóri frá 1993 þar til hann tók
við embætti sem ríkisskattstjóri.
Embætti ríkisskattstjóra var stofnað 1. október 1962. Starfsmenn þess
eru u.þ.b. 250 á níu starfsstöðvum. Ríkisskattstjóri hefur með höndum
álagningu opinberra gjalda og annarra skatta og gjalda og annast
skatteftirlit. Ríkisskattstjóri setur framkvæmdar og starfsreglur ásamt
leiðbeiningum og birtir eftir því sem efni standa til og þýðingu hefur.
Meginmarkmið ríkisskattstjóra er að skattskil almennings og fyrirtækja
séu rétt og í samræmi við lögbundnar skyldur. Það er einnig eitt af
meginmarkmiðum ríkisskattstjóra að þeir sem leiti til embættisins með
ósk um þjónustu, svo sem að skrá fyrirtæki, fái þjónustuna á öruggan
og góðan hátt í samræmi við gildandi lagaákvæði.
Eitt af stærstu verkefnum Skúla Eggerts á fyrstu árunum sem
ríkisskattstjóri var að sameina 10 stofnanir í eina. Gífurleg vinna var lögð
í að breyta hugarfari og endurskilgreina starfsemina á meðan á
sameiningarferlinu stóð ásamt því að viðhorf til starfsmanna og
viðskiptavina RSK var endurskoðað. Mikil áhersla var lögð á mannlega
þáttinn og að hafa alla starfsmenn virka í ferlinu. Skúli Eggert hefur eftir
sameininguna haldið því starfi áfram og var RSK valin stofnun ársins
árið 2015 og hefur fengið fjölda fleiri verðlauna fyrir góðan árangur á
liðnum árum.
Af afrekum rafrænnar stjórnsýslu skal fyrst nefna að RSK reið á vaðið
árið 1999 þegar fyrst var opnað fyrir skil á vefnum, þ.e. hægt var að
skrá inn tölur og senda rafrænt. Árið eftir, 2000, var hægt að geyma
framtalið og vinna í því áður en það var sent til RSK. Einhver áritun var í
framtölunum frá byrjun s.s. hjúskaparstaða, launamiðar og slíkt en síðar
jókst áritun jafnt og þétt og komu t.d. inn upplýsingar frá
fjármálastofnunum árið 2008. Útbúinn var sérstakur veflykill sem var
undanfari rafrænna skilríkja annars vegar fyrir einstaklinga og hins vegar
fyrir fagaðila. Þessir veflyklar eru í notkun hjá mörgum enn í dag. Þessi
rafræna leið til að skila skattaframtali þróaðist í gegnum árin og smám
saman urðu upplýsingar inn á framtölunum meiri. Frá árinu 2010 hafa
framtölin verið fullbúin hjá upp undir helmingi framteljenda þannig að í
dag þurfa margir einungis að fara inn og samþykkja framtalið og skila
rafrænt án þess að þurfa að bæta við upplýsingum.
Önnur verkefni í rafrænni stjórnsýslu eru:
• Rafræn skil á skattframtölum, sem voru voru 99,74% árið 2015
og sló öll met.
• Rafræn auðkenning, fyrst með veflykli RSK, síðar rafrænum
skilríkjum á debet kortum, og nú með rafrænum skilríkjum á
símum.
• Leiðréttingin, mjög flókið verkefni með aðkomu margra aðila,
snerti yfir 100 þúsund Íslendinga, rafræn ferli, rafrænar
undirritanir.
• Rafræn skattkort, nú um áramótin 2015/2016
• Rafræn skil á skatttekjum, VSK, gistináttaskattur
• Eru að vinna að innleiðingu á rafrænni fyrirtækjaskrá, hægt að
stofna fyrirtæki á vefnum, skrifað undir með rafrænum skilríkjum
Ljóst er að embætti ríkisskattstjóra hefur verið í fararbroddi og
frumkvöðull í nýtingu upplýsingatækni sem auðgar líf sem flestra
Íslendinga.
Undir stjórn Skúla Eggerts Þórðarsonar hefur embætti ríkisskattstjóra
verið leiðandi í rafrænni stjórnsýslu og nýtt upplýsingatækni á snjallan
hátt viðskiptavinum sínum til góða. Hann er hvetjandi yfirmaður og er vel
liðinn af starfsfólki RSK.
Það er valnefnd UTverðlauna Ský því mikil ánægja að afhenda Skúla
Eggert og embætti ríkisskattstjóra verðlaunin í ár. Verðlaunagripurinn er
glerlistaverk eftir Ingu Elínu listakonu. Í valnefndinni voru Hjálmar
Gíslason verðlaunahafi 2015, Rakel Sölvadóttir verðlaunahafi 2014,
Svana Gunnarsdóttir fyrir hönd styrktaraðila, Ari Kristinn Jónsson fyrir
hönd háskólasamfélagsins, Jóhann Þór Jónsson frá Samtökum
upplýsingatæknifyrirtækja, Guðmundur Arnar Þórðarson úr stjórn Ský
og Arnheiður Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Ský.
Upplýsingar um fyrri verðlaunahafa og reglur um UTverðlaunin er að
finna á www.sky.is.
UT VERÐLAUN SKÝ 2016
Verðlaunahafi Upplýsingatækniverðlauna Ský 2016
Skúli Eggert Þórðarson og embætti ríkisskattstjóra