Fréttablaðið - 20.01.2021, Qupperneq 22
Hafnarstræti 1–3 > fjallkona.isfjallkonan.rvk fjallkonan
FJALLKONAN FAGNAR ÞÉR!
SALATTÍMI
Í JANÚAR
Þrjár tegundir af ljúffengu salati
í hádeginu mánudaga–föstudaga
Kjúklingasalat
Tígrisrækjusalat
Confit kalkúnasalat
Hummusturn fylgir með!
>1.900 kr.
EITT SALAT + HUMMUSTURN
Verð á gámaf lutning-um frá Kína til Evr-ópu hefur meira en þrefaldast á þremur síðustu mánuðum ársins 2020. Hækk-
anirnar má rekja til þess að COVID-
19 hefur leitt til gámaskorts. Mikil
eftirspurn er eftir f lutningi á milli
heimsálfanna sem erf itt er að
mæta við núverandi aðstæður.
Þetta segir Bragi Þór Marinósson,
framkvæmdastjóri alþjóðasviðs
Eimskips, í samtali við Markaðinn.
Hann segir að markaðsaðstæður
hafi ekki teljandi áhrif á rekstur
Eimskips. „Okkur hefur tekist að
halda sjó,“ segir Bragi Þór. Eim-
skip sinnir meðal annars f lutn-
ingsmiðlun á milli álfanna og er
sérhæft í matvælum. Hann segir
að þrátt fyrir minna framboð hafi
fjöldi gámaeininga sem Eimskip
komi að ekki fækkað með teljandi
hætti. Verð sem viðskiptavinum
bjóðist séu nú hærri en framlegðin
hafi haldist svipuð.
Bragi Þór segir að á fyrri hluta
ársins 2020 hafi stóru skipafélögin
dregið úr flutningum á milli Asíu og
Evrópu vegna minni eftirspurnar.
Eftirspurnin hafi hins vegar glæðst
síðar á árinu. „Það er ekki sjálfgefið
að vöruflutningar séu jafnir í báðar
áttir. Það er til að mynda mikið
framleitt í Kína og f lutt til Evrópu.
Það gerði það að verkum að það
söfnuðust upp tómir gámar í Evr-
ópu.
Kínverskir útflytjendur hafa átt
erfitt með að flytja út vörur og því
hafa vöruhús fyllst. Þetta hefur
skapað verðþrýsting. Útflytjendur
hafa yfirboðið hver annan til að
fá pláss í skipi. Það hefur gert það
að verkum að hætt hefur verið
við f lutning á ýmissi ódýrari vöru
vegna þess að það borgar sig ekki
lengur. Kaupendur hafa orðið að
leita að sambærilegum vörum frá
öðrum löndum,“ segir hann.
Tekið er COVID-19 sýni úr
hverjum frystigámi sem f luttur
er til Kína sem gert hefur það að
verkum að það getur tekið um 20
daga að afgreiða hann úr höfninni.
„Kínverjar eru ítrekað að finna
COVID-19 smit á pakkningum sem
koma frá Evrópu og telja að með
þeim hætti berist smit til landsins
þótt gámarnir hafi verið í 40 daga á
leiðinni í 22 gráðu frosti. Við vitum
ekki til þess að þetta hafi verið
vandamál í Evrópu. Í Kína eru pall-
ettur og lyftarar ekki notuð í sama
mæli og í Evrópu og því er kössum
oft staflað með handafli. Þegar upp
koma smit eru höfnunum takmörk
sett eða lokað í einhvern tíma. Við
erum nú að bíða fregna af því að stór
höfn í Kína verði opnuð á nýjan leik.
Þetta leiðir til þess að hafnir eru oft
yfirfullar og því þarf að senda skip á
aðrar hafnir,“ segir Bragi Þór.
Menn eru ekki á einu máli um
hvenær leysist úr stöðunni. Bragi
Þór segir að nú séu f lutningar til og
frá Kína í hámarki því það styttist
í kínversku áramótin. Við það til-
efni sé mörgum framleiðslufyrir-
tækjum lokað í allt að þrjár vikur.
„Sumir telja að í kjölfarið muni
markaðurinn leita jafnvægis. Aðrir
telja að uppsafnaður vandi sé svo
mikill að það verði viðvarandi
gámaskortur fram í mitt ár 2021,“
segir hann.
Að sögn Braga Þórs tekur það
stórt skip um 40 daga að sigla frá
Evrópu til Asíu. Því taki hring-
ferðin um 80-100 daga að komast
aftur til Evrópu. „Það mun taka
tíma að bregðast við ástandinu,“
segir hann.
Fyrir tveimur árum var staðan
allt önnur. Nóg framboð var af
lausum gámum, verð í lægstu
lægðum og stóru skipafélögin
voru að tapa á f lutningunum. Til
að bregðast við því var meðal ann-
ars mikið um stórar sameiningar.
„Verðhækkanirnar hafa gert það
að verkum að stóru skipafélögin
eru að skila hagnaði núna,“ segir
Bragi Þór.
Flutningsverð frá Kína
til Evrópu þrefaldaðist
Skortur er á gámum í Kína til að ferja vörur til Evrópu. Tekið er COVID-19
sýni úr hverjum frystigámi sem fluttur er til Kína sem gert hefur það að
verkum að það getur tekið um tuttugu daga að afgreiða hann úr höfninni.
Flöskuháls hefur skapast í flutningum frá Kína til Evrópu vegna skorts á gámum. Sýnataka til að gá hvort COVID-19
smit sé í gámum frá Evrópu gerir það að verkum að langan tíma tekur að afgreiða hvern gám. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Helgi Vífill
Júlíusson
helgivifill@frettabladid.is
Mikill tími fer í að
þjónusta viðskiptavini
Helstu áhrif erfiðleika í
flutningum frá Asíu til Evrópu
á rekstur Samskipa er að mikill
tími fer í það hjá starfsfólki að
aðstoða viðskiptavini. „Aðal-
vinnan felst í því að finna laust
flutningspláss og leita lægstu
verða. Það hefur gengið upp
hingað til en mjög mikill tími
fer í það,“ segir Þórunn Inga
Ingjaldsdóttir, forstöðumaður
hjá Samskipum.
Stuðlar að
verðbólguþrýstingi
Bert Colijn, hagfræðingur hjá
fjármálafyrirtækinu ING, segir
að skortur á aðföngum og hærri
flutningskostnaður gæti dregið
úr hagvexti á heimsvísu og
stuðlað tímabundið að auknum
verðbólguþrýstingu í ár, að því
er fram kemur í frétt Financial
Times.
Framleiðendur í Bretlandi
segja að flutningskostnaður
hafi hækkað meira en sem
nemur hagnaði af sölu á vörum.
Þess vegna þurfi að hækka
vöruverð. Breskur innflytjandi
segir að hann standi frammi
fyrir því að annaðhvort hækka
verð til að mæta þreföldun á
flutningskostnaði eða eiga á
hættu að birgðir klárist.
Fram kemur í könnun að
framleiðendur á evrusvæðinu
séu að ganga á birgðir af hrá-
efnum til framleiðslu sinnar og
verð á aðföngum hafi hækkað
snarpt.
Bragi Þór
Marinósson,
framkvæmda-
stjóri alþjóða-
sviðs Eimskips.
2 0 . J A N Ú A R 2 0 2 1 M I Ð V I K U D A G U R10 MARKAÐURINN