Aðventfréttir - nov. 2017, Side 21
maðurinn skildi sig frá Guði með synd
sinni. Þá átti hann ekki lengur rétt á
lofti til að anda að sér, sólargeisla, né
hinum minnsta matarbita. Ástæðan
fyrir því að honum var ekki tortímt
var sú að svo elskaði Guð manninn að
Hann gaf Son sinn elskaða til að taka á
sig hegninguna fyrir synd mannsins.
Kristur áformaði að koma í stað
mannsins og ganga í ábyrgð fyrir hann
svo að maðurinn fyrir yfirgnæfandi
náð fengi annað tækifæri,
reynslutíma, með fall Adams og Evu
til aðvörunar að brjóta ekki gegn
lögmáli Guð eins og þau höfðu gert.
Og að svo miklu leyti sem maðurinn
nýtur blessana Guð, gjöf sólskinsins
og gjöf daglegs viðurværis, þá ber
manninum að lúta Guði í þakklátri
viðurkenningu á að allir hlutir eru frá
Guði. Allt sem Honum er gefið tilbaka
er einungis eign Hans sem gaf það í
fyrstu.
Maðurinn braut lögmál Guðs og
fyrir Endurlausnarann voru ný
fyrirheit gefin á öðrum grundvelli.
Allar blessanir verða að koma fyrir
atbeina meðalgöngumanns. Allir
meðlimir mannkynsins hafa nú verið
gefnir Kristi og allt sem við eigum –
hvort sem það eru fjármunir,
húseignir, landareignir, vitsmunir,
gáfur, líkamlegur styrkur – í þessu lífi,
og blessanir framtíðarinnar, allt er
þetta okkur gefið sem fjársjóður Guðs
sem við eigum að nota mannkyni til
góðs. Sérhver gjöf hefur stimpil
krossins og mynd og yfirskrift Jesú
Krists. Allir hlutir koma frá Guði. Allt
frá hinum minnstu gæðum upp í
hinar stærstu blessanir, allt rennur um
hinn eina Farveg – ofurmannlega
meðalgöngu sem stökkt er
ómetanlegu blóði, ómetanlegu vegna
þess að það var líf Guðs í Syni Hans.
Það er engin sál sem getur gefið
Guði neitt sem er ekki þegar eign
Hans. „Frá þér er allt, og af þínu
höfum vér fært þér gjöf.“ 1Kro 29.14.
Þessu verðum við að halda á lofti hvar
sem við förum – að við eigum ekkert,
getum ekkert boðið fram sem er
einhvers virði, í verki, í trú, sem við
höfum ekki fyrst fengið frá Guði. Og
Hann getur lagt hönd sína á þetta
hvenær sem er og sagt: þetta á ég – --
gjöfum og blessunum og hæfileikum
treysti ég ykkur fyrir, ekki til þess að
auðga ykkur sjálf, heldur til viturlegrar
ávöxtunar heiminum til góðs.
Allt er eign Guðs
Sköpunin er eign Guðs. Drottinn
E I N G Ö N G U
F Y R I R N Á Ð
Jesús sendi engan
frá sér. Jafnvel hinir
útskúfuðu og þeir
sem litið var niður á
nutu umhyggju hans.
m
y
n
d
:
I
n
t
e
l
l
e
c
t
u
a
l
r
e
s
e
r
v
e
I
n
c