Aðventfréttir - nov. 2017, Síða 25

Aðventfréttir - nov. 2017, Síða 25
J se ú Luc var út í garði ásamt fjölskyldu sinni. Þau opnuðu garðskúrin og tóku út garðverkfærin. Það hafði blásið hressilega um nóttina og allt á rúi og stúi. tess og Jakob hófust handa við að týna saman trjágreinar. mamma senti luc til að aðstoða föður sinn sem var að stilla upp stiga við húsvegginn. Pabbi ætlaði að taka niður trjágreinarnar sem stormurinn hafði feykt upp á þak. Pabbi klifraði upp stigann og upp á þak. „Þú ert frekar hátt uppi,“ sagði luc. Pabbi var snöggur að safna saman greinunum, fór að stiganum og leit niður til luc. „Þessi stigi minnir mig á samræður okkar síðastliðin kvöld,“ sagði pabbi. „Hvernig getur stigi haft eitthvað með synd og réttlæti að gera?“ spurði luc. „skjóstu og náðu í tess, Jakob og mömmu þína,“ sagði pabbi. Þegar allir höfðu safnast saman sagði pabbi “við höfum verið að læra um hvernig syndin aðskilur okkur frá Guði. Þessi stigi fékk mig til að hugsa um Jesú, dauða hans og hvað dauði hans þýðir fyrir okkur. Þó ég myndi teygja hönd mína niður til ykkar og þið ykkar hendur upp, gætu þær ekki snerts. Þegar adam og eva syndguðu gerðu þau bil milli sín og Guðs.“ „en Guð senti Jesú til að að teygja sig deyja fyrir syndir okkar,“ sagði tess. „reddaði það ekki bilinu sem var á milli?“ “rétt er það,“ sagði pabbi. „Jesús varð meðalgöngumaður milli okkar og Guðs.“ „mamma, gætir þú verið svo væn að klifra upp hálfan stigann?“ spurði pabbi. „Jesús lifði syndlausu lífi. Hann dó og reis upp frá dauðum. með því bætti hann fyrir bilið sem var milli Guðs og okkar. ef ég teygði hönd mína til mömmu og hún teygði hönd sína til mín, gætum við snerts. luc, gætir þú teygt út hönd þína til mömmu þinnar? luc teygði upp hönd sína og snerti hönd móður sinnar. „Þegar við tökum á móti Jesú, þá nálgumst við hann og réttum út hendur okkar. Jesú teygir sig til okkar, en sleppir ekki hönd sinni á Guði,“ sagði pabbi. „Hann er tenging okkar við Guð.“ BIBLÍUVERS Það er einn meðalgangarinn milli Guðs og manna, maðurinn Kristur Jesús. (1. tímóteusarbréf 2.5) Verkefni luc og fjölskylda hans tengdu saman hendur sínar til að sýna hlutverk Jesú sem meðalgöngumann milli Guðs og okkar. Prófa þú að gera þetta með fjölskyldu þinni. TIL UMHUGSUNAR Hvað myndi gerast ef Jesús myndi ekki rétta út hönd sína til okkar og til Guðs? M á n U d a g U r Barnalestrar í hönd Nóvember 2017 | Aðventfréttir 25

x

Aðventfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.