Lögmannablaðið - 15.06.1996, Síða 10
Sveinn Skúlason, hdl., framkvœmdastjóri Félags fasteignasala.
Frumvarp til laga um fasteigna-,
fyrirtækja- og skipasölu
Lagt hefur verið fram á Alþingi
frumvarp til laga um fast-
eigna-, fyrirtaekja- og skipa-
sölu. Verði frumvarp þetta að lög-
um, þá kemur það í stað gildandi
laga um fasteigna- og skipasölu,
nr. 34/1986.
Með þessu nýja lagafrumvarpi er
lagt til að bætt verði úr nokkrum
annmörkum, sem eru á gildandi
lagaákvæðum um þetta réttarsvið.
Frumvarpið er unnið á grundvelli
tillagna samstarfsnefndar dóms-
málaráðuneytisins og Félags fast-
eignasala að efnisbreytingum á nú-
gildandi lögum, sem flestar lúta að
öryggi viðskiptamanna fasteigna-
sala.
Sala fyrirtœkja
Lögunum er ætlað, auk þess að
taka til fasteigna og skipa, að taka
einnig til sölu á fyrirtækjum, en
engin ákvæði eru í gildandi lögum
um sölu fyrirtækja. Nú er hverjum
og einum frjálst að annast sölu fyr-
irtækja án opinberrar löggildingar
og án þess að nokkrar tryggingar
séu fyrir hendi, sem ætlað er að
bæta tjón viðskiptamanna verði
tjón af völdum þeirra er annast
milligöngu um sölu og skjalagerð
sem henni fylgir.
Að mati Félags fasteignasala er
afar nauðsynlegt að taka á þessum
ágöllum, enda berst fjöldi kvartana
til félagsins vegna mistaka og
óánægju fólks vegna þessara við-
skipta. Þannig hafa óprúttnir menn
komist upp með að valda fólki
verulegu tjóni vegna ófaglegra og
algerlega ófullnægjandi vinnu-
bragða við þessi viðskipti, sem því
miður hafa oftar en ekki leitt til
tjóns, sem síðan reynist ómögulegt
að fá bætt.
Sveinn Skúlason, hdL
Með breytingunni er ætlast til
þess að sams konar eða algerlega
hliðstæðum vinnubrögðum verði
beitt við sölu á fyrirtækjum eins og
við sölu fasteigna. Þannig þurfa
hinir löggiltu miðlarar að afla sér
skriflegs umboðs frá seljanda til
sölu fyrirtækisins, svo og þurfa
þeir að afla allra nauðsynlegra
gagna um hið framboðna fyrirtæki.
Þessar upplýsingar eiga að koma
glöggt fram á sérstöku söluyfirliti,
sem eiga að vera kaupendum að-
gengileg hjá miðlurunum.
Athyglisvert er áð í frumvarpinu
er rætt um fyrirtæki sem „stunda
virðisaukaskattskylda starfsemi".
Til er fjöldi fyrirtækja, sem ekki
stunda virðisaukaskattskylda starf-
semi, s.s. bankar, vátryggingafélög,
fyrirtæki á sviði samgangna er t.d.
stunda fólksflutninga með lang-
ferða- og hópferðabifreiðum, flug-
félög o.þ.h. Er von til þess að þessi
annmarki verði lagfærður í meðför-
um þingsins og frernur rætt um fyr-
irtæki, sem hafi fjárhagslega starf-
semi með höndum. Benda má
einnig á að um getur verið að ræða
sölu á hluta af fyrirtæki, t.d. þann
hluta þess, sem ekki stundar virð-
isaukaskattskylda starfsemi, þegar
um blandaðan rekstur er að ræða.
Þá er það nýmæli í frumvarpinu
að þeim, sem hafa atvinnu af því
að byggja og selja fasteignir, skuli
framvegis vera skylt að láta fast-
eignasala annast alla skjalagerð,
enda skulu þeir staðfesta hana
með áritun sinni á skjölin. Til þess
að tryggja þessa meðferð er lagt til
að skjölum verði ekki þinglýst
nema að áritun fasteignasala sé fyr-
ir hendi.
Þessu fyrirkomulagi er ætlað að
tryggja neytendur, sem oft á tíðum
hafa borið skarðan hlut frá borði
þegar byggingaraðilar annast sjálfir
sölu og aila skjalagerð er tengjast
sölunni. Er tilgangurinn sá að gera
fasteignasalann, sem hefur opin-
bera starfsviðurkenningu og ber
ábyrgð sem opinber sýslunarmað-
ur, ábyrgan fyrir því að réttarstaða
kaupandans sé ekki fyrir borð bor-
in og til þess að tryggja að hún sé
sem gleggst. Jafnframt er þá fyrir
hendi ábyrgðartrygging, sem bætir
tjón, er kann að orsakast af mistök-
um við skjalagerð eða skorti á
upplýsingum til kaupanda.
Starfsábyrgöarttyggingar
Lagt er til að sett verði ákvæði
um tryggingar í lögin sjálf, en nú-
gildandi tryggingarákvæði koma
fram í reglugerð nr. 520/1987, sbr.
reglugerð nr. 161/1994.
I lagafrumvarpinu er kveðið á
um það, að ekki skipti máli hvort
skaðabótaskyldan orsakast af
ásetningi eða gáleysi, ef viðskipta-
maður fasteignasala verður fyrir
10
Lögmannablaðiö