Málfríður - 15.09.1999, Side 13

Málfríður - 15.09.1999, Side 13
vegar og í Þýskalandi hins vegar, hvaða myndir eru í báðum löndum og hverj- ar ekki. Berið einnig saman titilinn á ensku og þýsku annars vegar og þýsku og íslensku hins vegar og veljið hvaða titill passar best. 3. Skrifið gagnrýni um eina af þessum myndum sem þið hafið séð eða gerið útdrátt úr gagnrýni sem þið finnið á vefnum. 4. Veljið leikara úr einni mynd, lesið gagnrýni um hann og skrifið saman- tekt um gagnrýnina í eigin orðum. (Sbr. Jánen, Tohannes: Kinowelt: http: //www.skolinternet. telia. se/TIS/tyska/kinowelt.htm) íþróttir: 1. Gerið samantekt á einum fótboltaleik í þýsku úrvalsdeildinni í þátíð, svara á ákveðnum spurningum eins og hvern- ig þróaðist leikurinn? Meiddist einhver leikmaður, voru gefin mörg rauð spjöld, hver skoraði o.fl. (krækjur eru tengdar á málfræðisíður þar sem nem- andinn getur aflað sér upplýsinga um þau málfræðiatriði sem hann þarf að kunna fyrir verkefnið, einnig eru krækjur á fótboltasíður þar sem nem- andinn getur lesið sams konar lýsingu og hann á að skrifa). 2. Leitið að upplýsingum um einn leik- mann í deildinni með hjálp leitarvéla, skrifið stutta lýsingu á leikmanninum með hjálp upplýsinga af vefnum. 3. Paraverkefni: Tveir nemendur vinna saman og búa til viðtal við einn leik- mann eða þjálfara, leitið að upplýsing- um um manninn og reynið að gera viðtalið trúverðugt. Leikið viðtalið fýr- ir bekkinn, einn er fréttamaður og annar leikmaður. 4. 4 æfingar: orðaforðaæfing, innfyllinga- ræfing, paraæfing, útskýring á orðtök- um og orðum sem eru bundin við fót- bolta. (Sbr. Jánen, Johannes:Bundesliga fFussbalh: http://www.skolinternet.teHa. se/TIS/tyska/obundes.htm) Einnig er hægt að heimfæra þetta verkefni upp á aðrar íþróttir eins og handbolta, tennis o.fl. Að mínu mati er nauðsynlegt fyrir kennara sem ætla að láta nemendur sína nýta vefinn í tungumálanáminu, að gera vefsíðu fýrir áfangann þar sem þeir safna saman krækjum sem eru áhugaverðar fyr- ir tiltekinn átanga, þannig að nemendur hafi greiðan aðgang að þeim. Vefsíðufor- rit eru með tilbúin form sem auðvelt er að fýlla inn í og þarf ekki mikla kunnáttu í vefsíðugerð til þess að vinna slíka síðu. Eg tel það ekki mögulegt að stunda sjálfsnám í tungumálum gegnum netið, of erfitt er að leita að einstökum kennslusíð- um og engin ein síða æfir allt sem þarf að kunna til að ná tökum á erlendu máli. Efnið er einnig aðallega fyrir unglinga en þeir sem stunda sjálfsnám eru frekar full- orðið fólk. Vefurinn er óþrjótandi viskubrunnur sem mikilvægt er að bæði kennarar og nemendur læri að nýta í starfi sínu. Nú þegar er kennsluefni eins og Themen neu með heimasíðu sem ítarefni fyrir kennara og nemendur og í framtíðinni munu heimasíður verða stærri hluti af námsefn- inu. Hér hafa einungis verið nefnd nokk- ur dæmi og þá eingöngu stuðst við þýsku- mælandi vefi. Hver kennari verður að sjálfsögðu að finna efni við sitt hæfi og laga það að sínu kennsluefni og markmið- um. Þetta er einungis brot af því sem ég hef kannað og sjálfsagt mál er að gefa nán- ari upplýsingar um niðurstöður mínar: thorhir@hi.is einnig vísa ég í ritgerð mína sem heitir Das Internet im DaF- Unterricht og er hægt að nálgast hana í Þjóðarbókhlöðunni. Að lokum vil ég hvetja kennara, sem nýta vefinn í kennslu, að gera úttekt á reynslu sinni og koma þeim niðurstöðum á framfæri því mikiU skortur er á upplýsingum af slíku tagi. Heimildir Döring, Nicola: Das WWW im Unterricht. Freiburg, 1997: http://paeps.psi.uni-heidel- berg.de/doering/cawdoe.htm Frischherz, Bruno og Lenz, Peter: Deutsch ler- 13

x

Málfríður

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.