Málfríður - 15.09.1999, Page 16

Málfríður - 15.09.1999, Page 16
Þriðji liðurinn í námskeiðinu var hóp- vinna þar sem unnið var að því að skipu- leggja verkefni um vefsíðugerð með það í huga að verkefnið væri raunhæft. Jafnvel ætti að stefna að því að hrinda því í fram- kvæmd í vetur. Ymsar hugmyndir komu fram í hópunum, svo sem að nemendur útbyggju vef í kringum heimsókn til Frakklands, að ofinn væri kynningarvefur um Island eða um Belgíu svo dæmi séu nefnd. Ég ætla að leyfa mér að láta hér fylgja dæmi um verkefni úr hópnum mínum. Aðrir meðlimir hópsins voru þau Grétar Skúlason, Margrét Helga Hjartardóttir og Hrefna Clausen.Við tókum þann kost að vinna málfræðivef. Margrét og Grétar tóku síðan að sér að framkvæma hug- myndir hópsins í kennslu sinni í Kvenna- skólanum í vetur. Sú vinna er þegar kom- in af stað og verður spennandi að fylgjast með verkefninu. Markmið: að bæta málfræðikunnáttu nemenda á nýj- an og lifandi hátt, að auka orðaforðann, að nemendur geri sér grein fýrir nauðsyn þess að læra málfræði, að búa til kennsluefni fyrir aðra frönsku- nema, að kynna vefnað fýrir nemendum. Nemendur verða höfundar eigin kennsluefnis sem einnig nýtist öðrum frönsku- nemum til að rifja upp og bæta kunnáttu sína. 16 Framgangur — fyrsta kennslustundin: Kennarinn útskýrir fýrir nemendum að til standi óvenjulegt verkefni. Hann reynir að skilgreina með þeim hvaða vandamálum þeir mæta í frönskunáminu. Þegar ljóst er að það er málfræðin sem þvælist fýrir þeim er tekin ákvörðun um að búa til málfræði- vef. Þessi vinna verður metin sem hluti af lokaeinkunn áfangans (að sjálfsögðu). Nemendur verða höfundar eigin kennslu- efnis sem einnig nýtist öðrum frönsku- nemum til að rifja upp og bæta kunnáttu sína. Vinnan felst í að skrifa sögu um ákveðnar persónur sem þróast smám sam- an. Nemendur geta leitað innblásturs í kennslubókinni, í því sem þeir vita um Frakkland og í eigin reynslu. Til að koma hugmyndafluginu af stað getur kennarinn t.d. komið í tíma með mynd eða jafnvel hluti sem yrðu upphafspunktur vinnunnar (dæmi : sýna tvær húfur og spyrja hver eigi þær ...). Meginhugmynd: Nemendur skrifa texta sem bæta við sög- una.Villurnar sem þeir gera verða kveikjan að æfingum og reglum. Villur nemenda sjálfra ákveða því uppbyggingu vefsins eftir því sem vinnunni miðar áfram. Með því að smella á vitleysuna í sögunni fæst síða með æfingum um þetta ákveðna atriði auk þess sem hægt yrði að fara af æfingasíðunni á aðra síðu þar sem reglan varðandi þetta at- riði væri útskýrð. Þannig myndu sömu villur í mismunandi hlutum sögunnar vera krækjur í sameiginlega æfingasíðu. Vonandi hefur mér tekist að gefa ein- hverja hugmynd um námskeiðið sem mér fannst bæði skemmtilegt og gagnlegt. Svona stutt námskeið geta að sjálfsögðu aðeins verið kynning á möguleikunum sem felast í nýtingu tölvu- og upplýsinga- tækni í kennslu. Þau eru hins vegar ómet- anlegur upphafspunktur. Hver og einn getur síðan lagt út frá honum í nánari könnun og útfærslur á notkunarmögu- leikum netsins í eigin kennslu. Að lokum læt ég fýlgja nokkrar slóðir sem við skoðuðum á námskeiðinu. Síð- urnar eru af ýmsum toga en undirrituð tekur enga ábyrgð á þeim, hvorki inni- haldi né virkni. a) Nokkrar síður sem við reyndum að greina í „hypertexte“ og rafrænan texta: Dictionnaire Hachette : http: / / www.francophonie.hachette-livre.ff / Le-temps-du-ucre : http://www. erabliere-lac-beauport.qc.ca/blonde.htm Enseigner le franfais au lycée: http://www. bplorraine.fr/Jeg/sommaire.htm Périodiques électroniques : http://bibHo.ntic.org/biblio/ Hyperfiction : http://metafort.com/ synesthesie/synó/ boutiny/intro.htm#non Dictionnaire des synonymes : http://elsapl .unicaen.fr/cgi-bin/trouve8

x

Málfríður

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.