Málfríður - 15.09.1999, Qupperneq 19
Hluti af enskukennurunum frá íslandi í skoðunaferð um Bath.
betra að nota headteacher um skólastjóra og
fólk er hvatt til að nota orðmforename,first
name eða personal name í staðinn fyrir
Christian name. Þegar verið er að tala um
líkamlega eða andlega fötlun fólks þykir
samkvæmt þessu ekki lengur viðeigandi
að nota mentally eða physically handicapped,
heldur mentally eða physically challenged.
Háskólinn í Bath hefur sett fram ákveðna
stefnu um viðhorf til jafnréttis allra þjóð-
félagshópa (Equal Opportunities Policy) og
til að undirstrika þessi markmið hefur ver-
ið gefmn út bæklingur, sem ber yfirskrift-
ina Non-Discriminatory Language, þar sem
nemendur og starfsfólk skólans eru hvött
til aðgæslu í ræðu og riti.
Einum degi var varið í skólaheimsókn-
ir og var það bæði fróðlegt og skemmti-
legt. Skólinn, sem minn hópur fór í, er
kaþólskur einkaskóli á unglingastigi, en sá
skóli hefur getið sér gott orð. Þar virtist
margt líkt með íslenskum skólum, en
nemendurnir fóru þó oftar í ýmiss konar
vettvangsferðir en íslenskir jafnaldrar þeir-
ra. Þessum ferðum voru síðan gerð skil á
skemmtilegan hátt, meðal annars með
fjölbreytilegum vinnubókum og verkefn-
um sem höfð voru til sýnis í skólastofunni.
Skoðunarferðir um Bath og markverða
staði þar í kring voru hluti af námskeiðinu
og voru ánægjulegar og fróðlegar. Bath er
yndisleg borg, falleg og heillandi. Hún er
frægust fýrir rómversku böðin, sem Róm-
verjar byggðu þar árið 65 e.Kr. og nýttu
þeir í böðunum hið náttúrulega heita vatn
sem þarna er í jörðu. Arið 1574 lét Elísa-
bet L Englandsdrottning endurbyggja
böðin og dómkirkjuna og á 18. öld var
mikið lagt í endurreisn borgarinnar sem
síðan hefur verið einn af vinsælustu og
fjölsóttustu ferðamannastöðum Englands.
Einn frídaginn var farið í þriggja tíma
fjallgöngu í Wales undir leiðsögn kennslu-
stjóra enskudeildarinnar við háskólann í
Bath en hann er mikill göngugarpur.
Hann var einnig svo vinsamlegur að lána
okkur húsið sitt 17. júní, þar sem við héld-
um upp á þjóðhátíðardaginn, og var Gerði
Guðmundsdóttur, fráfarandi formanni Fé-
lags enskukennara á Islandi, þá þakkað
mikið og gott starf, rneðal annars við und-
irbúning þessa námskeiðs.
Námskeiðið í Bath var bæði fróðlegt
og skemmtilegt. Ekki síst er ánægjulegt að
kynnast öðrum kennurum og fræðast um
England og enska menningu í hópi kenn-
ara. Þegar horft er til baka finnur maður
vel hversu mikils virði það er fýrir íslensk-
an enskukennara að fá tækifæri til endur-
menntunar í ensku menningarumhverfi.
Háskólinn í
Bath hefur sett
fram ákveðna
stefnu um við-
horf til jafnréttis
allra þjóðfélags-
hópa
Laufey R. Bjarnadóttir, kennari við MR.
19