Málfríður - 15.09.1999, Síða 26
Ég tel að nauð-
synlegt sé að
beita mismun-
andi kennsluað-
ferðum og hafa
kennsluna sem
fjölbreyttasta.
til nóg af nýju og vel framsettu efni í
þýskukennslu? Það má vel vera en ég álít
hins vegar að það sé mikilvægt að kennar-
inn leggi eitthvað af mörkum sjálfur til
kennsluefnisins, hvað varðar hönnun þess
og framsetningu, þótt ekki væri nema til
þess að gefa af sjálfum sér til nemenda.
Þannig tel ég mikilvægt að grípa þær hug-
myndir sem gefast í það og það skiptið
þegar kennslubók er höfð sem grunn-
kennsluefni til að krydda aðeins tilveruna
ef svo má að orði komast, því nemendur
þurfa tilbreytingu í kennslu. Ég tel það þó
skipta miklu máli að þessi samfléttun
heimatilbúins efnis og efni kennslubóka sé
sem eðlilegust og sé sá megintilgangur
ætlaður til að lyfta nemendum á stundum
upp frá efni kennslubókar og stefna þeim
burt úr kennslustofu á vit framandi lands
og auka þannig áhuga þeirra á nrálinu og
menningu þess.
Einnig er mikilvægt ffá mínum bæjar-
dyrum séð að nemendur hafi mikið um það
að segja hvað tekið skal fyrir í kennslunni,
taka þarf mið af því hvar áhugi þeirra hgg-
ur og ekki má vanmeta þá í því sambandi.
Ég tel að nauðsynlegt sé að beita mis-
munandi kennsluaðferðum og hafa
kennsluna sem fjölbreyttasta. I því sam-
bandi ber að hafa í huga hvað nemendur
eru ólíkir og til að ná til allra er fjöl-
greindakenning Gardners heppileg.
Þannig fer kennari inn á áhugasvið flestra
nemenda og nær að vekja áhuga þeirra á
þýskri tungu og menningu.
Þegar kennari undirbýr kennslu sína
verður hann því að hafa vakandi auga fyr-
ir því hvernig viðfangsefni hans reyna á
nemendur með þeim fjölbreytta hætti sem
nauðsynlegt er. Því þarf að varast einhæf
markmið. Sífellt verður að spyrja sig
hvernig hægt sé að ögra hugsun nemenda
með margvíslegu móti, hvernig hægt sé að
rækta sköpunargáfu þeirra, stuðla að mót-
un jákvæðra viðhorfa, hæfni í sjálfstæðum
vinnubrögðum og samvinnu, hvernig unnt
sé að tengja viðfangsefnin reynslu nem-
enda og umhverfi og hvernig hægt sé að
koma til móts við ólíka hæfileika nemenda
þannig að hver fái notið sín til hins ýtrasta.
Þannig tel ég mikilvægt í allri kennslu
að leggja áherslu á að brjóta kennsluefnið
Nokkrar áhugaverðar vefslóðir:
http://www.bz-berlin.de/bz/ecken/mauer/mauer.htm
http://www.bz-berlin.de/bz/ecken/mauer/fechter.htm
http: / / www. rammstein. de/homeset_d. html
http://www.bright.net/~phreek/rammstein/lyric.htm
http://privat.schlund.de/R/Rammstein/bilder_nf.htm
http: / / zitty. de/index. htm
http://www.bvb.net/d_tours_super.html
http://www.vonderbecke.force9.co.uk/topogr.htm
http://userpage.chemie.fu-berlin.de/BIW/d_berlin-info.html#hist
http://userpage.chemie.fu-berlin.de/bilder/13aug.gif
http://www.brocku.ca/history/German.html
http://ccat.sas.upenn.edu/~hfleming/Mauer.htm
http://dbs.schule.de/
http://home.netscape.com/de/
http: / /rneta. rrzn .uni-hannover. de/
http://www.inter-nationes.de/
http://www.tu-dresden.de/sulifg/daf/ daflinks.htm
http://www.educat.hu-berlin.de/~stefan/mauer/august/
http://www.dailysoft.eom/berlinwall/d/index.html
http://www.geocities.com/CapitolHill/9450/dmlinks.html