Víðförli - 15.07.1985, Page 3

Víðförli - 15.07.1985, Page 3
Prestar koma viöa aö til prestastefnu. Frá vinstri taliö eru sr. Baldur Vilhelmsson í Vatnsfirdi, sr. Ingimar Ingimarsson á Þórshöfn, sr. Quöni Þór Ólafsson á Melstaö og sr. Tómas Quömundsson í flveragerði. Sr. Birgir Ásgeirsson á Mosfelli segir góöa sögu og meöal þeirra sem njóta hennar má þekkja sr. Lárus Halldórsson í Breiöholtssókn, sr. Oylfa Jóns- son rektor í Skálholti, sr. Quömund Þorsteinsson í Árbæjarsókn, sr. líarl Sigurbjörnsson í tlallgrímssókn, sr. Qunnlaug Qaröarsson á Þingeyri, sr. Sigurö Siguröarson á Selfossi og sr. Jónas Qíslason dósent. RÍMAÐ Á PRESTASTEFFÍU Það eru allmargir hagyrðing- ar í prestastétt og gjarnan kastað fram visum þegar þeir koma saman. Eftir umræðu í starfshóp, þar sem fjallað var um hversu kaþólskir setja þeim skilyrði sem vilja ganga til alt- aris en allir séu velkomnir hjá iúterskum, tjáði sr. Hjálmar Jónsson niðurstöðurnar með þessum orðum: Það er Quðs heilagi andi og orð sem oss mettar lífsgæðum sönnum. Og vér höfum opið altarisborð til einingar kristnum mönnum. Stundum eru viðbrögðin af léttara taginu. Rætt var um inntak prestastefnunnar og hvílík veisla hún væri til líkama og sálar eins og sr. Bragi Frið- riksson benti á, og undir mál hans tóku sr. Gísli Kolbeins og sr. Halldór Qunnarsson í Holti. Þá heyrðist frá sr. Hjálmari. Biskup flytur mikið mál matreiðir með stolti, Bragasalat, Kolbeinskál og kannski lamb úr Holti. Enginn þeirra þriggja heið- ursmanna er beinlínis á hor- leggjunum, en sumir eru grennri en aðrir eins og kunn- ugt er, og sr. Birgir Ásgeirsson á Mosfelli lagði þetta til mála: Satt er, að veislur því valda að vissir menn eru svo knáir. En eigum vér einhvers að gjalda sem erum svo rýrir og smáir? Frá vinstri: Sr. Magnús Quöjónsson biskupsritari, sr. Jón Einarsson prófastur í Saurbæ, sr. tlalldór Gunnarsson í tlolti, sr. Úlfar Quö- mundsson á Eyrarbakka og sr. Brynjólfur Qislason í Stafholti. \nnn<->ni i

x

Víðförli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.