Víðförli - 15.07.1985, Qupperneq 12

Víðförli - 15.07.1985, Qupperneq 12
XK—r—ZMK »K- . XK XK MK XK---- ~XW— 'XW---------XW------Hk------XW------XW M« '"' XK miXKniZIMK=0>K-------------ZZXK X K= aic IX KZ IXIC IX KI IX KI IX KI IX KI IX KI IX r f’orbjörg Daníelsdóttir Á sunnudagsgöngu Mann átti upptök sín ofarlega í Öskjuhlíðinni, ég veit ekki al- veg hvar, en þegar ég tók eftir honum var hann orðinn ofurlít- ill lækur sem hafði fundið sér farveg í skorningi í götuslóðan- um og þar leyfði hann sér að renna fram og vera glaður í vorsólinni sums staðar var yfir honum kristalsþak sem næturfrostið hafði spennt yfir hann og stundum velti hann upp litlum silfurperlum sem sindruðu á yfirborðinu stundum skipti hann sér og renndi sér sitt hvoru megin við smástein en tók svo saman við sjálfan sig aftur og hélt ferð sinni áfram og ef hindrun varð á vegi hans sem hann komst ekki yfir setti hann í herðarnar og smeygði sér fimlega hjá þannig komst hann leiðar sinnar þá sem honum var ætluð lítill leysingarlækur glaður yfir því að vera til eina stund í eilífðinni, yfir því að vera einn vordag hluti af hinni síungu sköpun Quðs — þáttur í framstreymi alls sem er og var- ir eitt augnablik eða um aldir. * ki IX KI IX KI IX KI IX KI IX KI IX KI IX KI IX KI IX X Tekiö tali Helgi Hróbjartsson var vígð- ur s.l. haust til Hríseyjar, en hafði unniö um áratug aö kristniboðsstarfi í Afríku. Mér hefur þótt það umhugs- unarvert þegar við förum út í eyju með ferjunni og skiljum bílinn eftir í landi, að þá setjum við klukkuna aftur á bak, um svo sem 50 ár. Svona hlýtur líf- ið að hafa verið um land allt í gamla daga og mikið er það gott líf. Við hittumst á götunni og tökum fólk tali. Mannlífið er öðruvísi þegar allir eru fót- gangandi. Það er full kirkja en engir bílar fyrir utan og menn ganga saman heim að lokinni messu. Þetta sést ekki víða á ís- landi. Bíllinn skapar í öðru vissa einangrun og hraðar lífs- taktinum sem er ekki alltaf til góðs. Hvað er eftirminnilegast þegar þú lítur til baka á fyrsta árið í prestskapnum? Það hefur glatt mig mest hversu gott er að ná persónu- lega til fólks og hversu góður hljómgrunnur er í guðsþjónust- unni. En eftirminnilegasti at- burðurinn, er trúlega ferming- arbarnamótið í Grímsey. Við leigðum okkur flugvél sem flaug með okkur til Grímseyjar, fermingarbörnin 14 og mig og þar vorum við í tvo daga. Ég hef kynnst þessum hóp mjög vel, hitti þau reglulega þrisvar í viku í starfi og skóla. Það hefur verið afar lærdómsrikt. 12 - VÍÐFÖRLI

x

Víðförli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.