Víðförli - 15.01.2007, Page 1

Víðförli - 15.01.2007, Page 1
VÍÐFÖRLI FRÉTTABRÉF BISKUPSSTOFU - www.kirkjan.is 26. ÁRG. 1. TBL. JANÚAR 2007 Ljósmynd: Árni Svanur Daníelsson Meðal efnis íslandsdeild Anglican................ 2 Mörg hundruð messur.................. 2 Vatnið breitir öllu.................. 3 Samið um prestasetur................. 4 Staða og skyldur Þjóðkirkjunnar... 5 Vlnaleiðin og þarfir barna........... 6 Samkirkjulegur söfnuður.............. 7 Þrettán trúfélög..................... 8 Afmæli biskupsstólanna............... 8 Þrenningin........................... 9 Landsmót Æskulýðsfélaga............. 10 Erkibiskup Svíþjóðar.............. 11 Nýjar bækur....,.................... 12 Kyrrðardagar I Skálholti.......... 14 Námskeið Leikmannaskólans......... 15 Útgefandi: Skálholtsútgáfan, útgáfufélag þjóökirkjunnar, Laugavegi 31, 101 Reykjavík Ritstjóri: Steinunn A. Björnsdóttir. Netfang: frettir@biskup.is Prentvinnsla: Gutenberg hf. Góð kirkjusókn Talning sem fram fór í kirkjum Reykjavíkurprófastsdæmanna beggja á haustdög- um sýnir að gríðarlegur fjöldi fólks kemur í kirkju og á þangað margvísleg erindi. Það er gaman að sjá. Kirkjan okkar er öflug og auðug og hefur margt að gefa. Aldrei hefur verið boðið upp á fleiri og fjölbreyttari tækifæri til að njóta jólaboð- skaparins í orðum, tónum, fögrum listum. Það gerist ekki af sjálfu sér. Mikill fjöldi fólks kemur þar að og leggur fram sína góðu krafta og náðargáfur, og það af miklu örlæti og fórnfýsi. Og markmiðið er ætíð að gleðja, að gleðja aðra, að miðla hug- hrifum, helgi jólanna og undursamlegasta boðskap í heimi, fagnaðarerindinu um frelsarann. Við eigum því fólki mikið að þakka sem leggur þetta á sig. Og Guði sé lof fyrir að hann eflir þjóna sína og söfnuði í þjónustunni. Þó að fróðlegt sé að leggja tölulega mælikvarða á starfsemi, þjónustu og viðbrögð, þá er gildi þess sem kirkjan er og hefur fram að færa óháð því hve margir heyra og samsinna. Traustasti mælikvarði á styrk kirkju og trúar er í því hve margir leggja leið sína í helgidómanna utan hátíðanna og hve margir foreldrar kenna börnum sínum að biðja og þekkja Jesú Krist. Bak jólum og utan hátíða er áreiðanlega færri tilboð að finna og minna lagt í, - nema það sem mestu máli skiptir, að fagnaðarerindi Jesú Krists hljómar og er iðkað, og að Hann er ætíð til staðar þar sem tveir eða þrír eru samankomnir í nafni hans. í því er góð kirkjusókn umfram allt fólgin, að fólk vill vera til staðar þar sem frelsarinn mælir sér móts við það í orði sínu og við borðið sitt og sendir út til að bera ávöxt fyrir himinn og jörð á rúmhelgum og í önnum dagsins. Karl Sigurbjörnsson www.kirkjan.is 1/2007

x

Víðförli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.