Víðförli - 15.01.2007, Page 7

Víðförli - 15.01.2007, Page 7
VI'ÐFÖRLI JANÚAR 2007 7 Samkirkjulegur söfnuður á Reyðarfirði Kirkjustarfið á Reyðarfirði er með fjölbreyttara móti í vetur. Nýjasta viðbótin er samkirkjulegur söfnuður, enskumælandi fólks sem tilheyrir hinum ýmsu kirkjudeildum víðsvegar um heiminn. í grunninn er um að ræða fólk sem hefur búsetu á Reyðarfirði, tímabundið, vegna vinnu sinnar við álverið. Er hér um að ræða samstarfsverkefni Þjóðkirkjunnar og Alcoa - Fjarðaráls sem staðið hefur nú í rúmlega eitt ár. Markmiðið með verkefninu er að koma til móts við félags- legar og trúarlegar þarfir þessa fólks sem er vikum saman í burtu frá sínum heimahögum og liðka þannig um leið fyrir samskiptum þess og heimamanna Flólmgrímur E. Bragason héraðsprestur Austfjarða- prófastsdæmis þjónar söfnuðinum. Alcoa-Fjarðarál og undirverktakinn Bechtel, sem sér um byggingu álvers- ins, útnefndu strax á haustdögum 2005 Slawomir Gorski, almannatengsla og viðburðastjórnanda hjá Bechtel sem sinn tengilið við kirkjustarfið. Slawomir kemur frá Póllandi, tilheyrir Kaþólsku kirkjunni og er menntaður Guðfræðingur. Þar er á ferðinni einstakur stuðningsmaður samkirkjulegs kirkjustarfs sem hefur fram að færa mikla reynslu og þekk- ingu á öllum sviðum kirkjustarfs og guðfræði. Er ómet- anlegur akkur og styrkur í Slawomir fyrir samfélagið hérna á Reyðarfirði, ekki einungis í því sem lýtur að kirkjustarfinu heldur ekki síður að öðrum þáttum samfélagsins. Leiða Slawomir og Elólmgrímur ásamt Guðlaugu Árnadóttur grunnskólakennara, sem sér um sunnudagaskólann og Gillian Haworth organista Reyðarfjarðarkirkju starfið. Hefur þessi samkirkjulegi söfnuður aðsetur í Reyðarfjarðakirkju í góðu samstarfi við sóknarnefndina þar. Eru haldnar messur og sunnudagaskóli fyrir börn á ensku annan hvern sunnudag klukkan 14.00. Næsta messa og sunnudagaskóli verður sunnudaginn 19. nóvember næst komandi. Að sjálfsögðu eru allir velkomnir. Á tveggja vikna fresti er einnig boðið upp á kvikmynda- sýningar ( safnaðarheimili Reyðarfjarðarkirkju. Á eftir sýn- ingar eru myndirnar rökræddar yfir kaffibolla, meðal annars út frá sjónarhorni trúarbragðanna. Þjóðkirkjan vill með þessu verkefni fá að vera bakland fjölskyldna og einstaklinga í daglegu amstri þeirra hvort sem þeir eru búsettir hér á Reyðarfirði tímabundið eða til lengri tíma. Hún vill eiga þátt í gleði þeirra og vonum sem og sorgum og þjáningum. Þjóðkirkjan telur það vera hlut- verk sitt, í því fjölmenningarsamfélagi sem við þekkjum í dag, að bjóða þetta fólk velkomið í kirkjuna og að bjóða því upp á kristilegt starf, persónulega þjónustu sem og mann- legt og uppbyggjandi samfélag því enginn er útlendingur í kirkju Krists. Hólmgrímur Elís Bragason Samstarfsverkefni Sjónarhóls og barnastarfs kirkjunnar Nú í vetur hefur yfirskrift kirkjunnar verið Kærleiksþjónusta og hjálparstarf. í Stefnu-og starfsáherslum kirkjunnar er sjónum m.a. beint að stuðningi við langveika og aðstandendur þeirra. Barnastarf kirkjunnar hefur í vetur verið í samstarfi við Sjónarhól, ráðgjafarmiðstöð fyrir fjölskyldur langveikra barna. Samstarfið hefur m.a. verið fólgið í því að kirkjurnar kaupa Engilráð andarunga sem er handbrúða og rennur ágóðinn af sölu brúðunnar til Sjónarhóls. Eva Þengilsdóttir, starfsmaður á ráðgjafamiðstöðinni Sjónarhóli er höfundur Engilráðar og hefur samið fjölda leikrita fyrir barnastarf kirkjunnar um andarungann Engilráð sem leikin eru á hverj- um sunnudegi í barnastarfinu. Fjölmargar kirkjur gáfu leikskólum í sínum sóknum sér- stök jóladagatöl með leikritum og fylgdi Engilráð andarungi hverju dagatali. Með þessu móti hafa 730 brúður selst og ágóðinn af þeim öllum rennur til Sjónarhóls. Boðskapur Engilráðar fellur vel að því gildismati sem við viljum kenna börnum í sunnudagaskólanum og eru eink- unarorð hennar: Inn með sælu- út með sút! Þau börn sem koma í sunnudagaskólann fá gefins Brosbók Engilráðar. Eina fyrir jól og aðra eftir jól. í Brosbókina geta þau teiknað, safnað lím- miðum og leyst verkefni eða einfaldar þrautir. Þar er líka að finna stutt bréf frá Engilráð á hverri opnu. Auk þess má finna þar nokkur orð til foreldra og skemmtilega söngva úr sunnu- dagaskólanum. Kári Gunnarsson, myndlist- armaður, hannaði og teiknaði brúðuna Engilráð og mynd- skreytti Brosbókina. Það er von okkar að samstarf Engilráð á heftl barnastarfsins barnastarfs kirkjunnar við Sjónarhól létti langveikum börn- um og fjölskyldum þeirra lífið á einhvern hátt. Elín Elísabet Jóhannsdóttir, fræðslufulltrúi á fræðslusviði Biskupsstofu.

x

Víðförli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.