Víðförli - 15.01.2007, Page 11

Víðförli - 15.01.2007, Page 11
VÍÐFÖRLI JANÚAR 2007 11 Erkibiskup Svíþjóðar heimsækir Þjóðkirkjuna Fjölskyldu-og félagsþjónusta Reykjanesbæjar, Keflavíkurkirkja og Kjalarnessprófastdæmi standa fyrir ráðstefnu um áhrif skilnaðar á börn og leiðir til úrbóta. Áhrifin eru einstaklings - og persónubundin en koma m.a. fram í breyttum tengslum barns og foreldra, barns við fjölskyldur foreldra, félagslegum aðstæðum, heilsu og líðan og í grenndarsamfélaginu svo eitthvað sé nefnt. Á ráðstefnunni verður verður fjallað um það nýjasta í rannsóknum hérlendis og leiðum til að bæta stöðu barna foreldra sem skilja/slíta samvistum. Meðal þátttakanda á ráðstefnunni verða fulltrúar evangelísku kirkjunnar í Marburg Þýskalandi, sem hefur sérhæft sig í málefnum skilnaðarbarna og vinnu með fjölskyldum Meira þegar nær dregur - Mundu að taka 23 febrúar 2007 frá fyrir sí- og endurmenntun. F.h. ráðstefnuhaldara Reykjanesbær, Keflavíkurkirkja og Kjalarnessprófastsdæmi Keflavíkurkirkja Kjalarness prófastsdæmi | REYKJANESBÆR Anders Wejryd, sem tók við embætti erkibiskups í Svíþjóð í september- byrjun á þessu ári, kom í heimsókn til íslands í nóvemberlok til að kynna sér Þjóðkirkjuna og ræða þau málefni sem brenna sameiginlega á systurkirkj- unum í norðri. f fylgd með erkibiskupn- um voru Lena Bohman, ráðgjafi á sviði guðfræði, og biskupsritarinn Michael Persson. Sænsku gestirnirræddu við starfsfólk ýmissa sviða biskupsstofu, bæði um uppbyggingu og fjármál Anders Wejryd erkibiskup ásamt Karli Sigurbjörnssyni biskupi, Jóni A. Baldvinssyni kirkjunnar en einnig um vígslubiskupi á Hólum og Michael Persson og Lenu Bohman. (Mynd: ÁSD) innra starf hennar, sam- kirkjulegt starf og fleira. Þeir hittu líka starfsfólk frá Hjálparstarfi kirkjunnar til að ræða málefni miðausturlanda. Þá heimsótti erkibiskupinn tvær kirkjur í Reykjavík, Hallgrímskirkju og Dómkirkju og fræddist um safnaðarstarf. Heimsóknin til íslands er liður í ferð Anders Wejryd erkibiskups um Norðurlönd en hann hefur í haust heimsótt allar systurkirkjur sænsku kirkjunnar á Norðurlöndum. Takið frá föstudaginn 23. febrúar 2007 kl. 10:00 - 16:00! ÁFRAM ÁBYRG! Kristin trúfélög á Islandi Ellefu fulltrúar kristinna trúfélaga kynntu söfnuð sinn á námskeiði um kristnar kirkju- deildir sem haldið var á vegum leikmanna- skólans í október og nóvember. Þetta voru fulltrúar frá Kefas, Óháða söfnuðinum, Fíladelfíu, Aðventkirkjunni, Rússnesku rétt- trúnaðarkirkjunni, íslensku Kristskirkjunni, Krossinum, Hjálpræðishernum, Kaþólsku kirkjunni, Veginum og Þjóðkirkjunni. Alls sóttu um 40 manns námskeiðið.

x

Víðförli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.