Víðförli - 15.01.2007, Blaðsíða 12

Víðförli - 15.01.2007, Blaðsíða 12
12 VÍÐFÖRLI 26. ÁRG. 1. TBL. Nýjar bækur Síðasta ár var gjöfult fyrir áhugafólk um góðar bækur er varða trúarlíf, kirkjusögu og spurningar líf og trú. Nokkrar voru kynntar í Víðförla á síðasta ári og hér er tæpt á nokkrum til viðbótar: Ríki og kirkja Uppruni og þróun þjóðkirkjuhugtaksins Eftir dr. Sigurjón Árna Eyjólfsson Á íslandi hefur lengi vantað guðfræðilega úttekt á sam- bandi ríkis og kirkju og þeirri hugmyndafræði sem býr að baki þjóðkirkjunni. Hér er rakin saga evangelísk-lúthersks kirkjuskilnings allt frá dögum Marteins Lúthers til Friedrichs Schleiermachers, og þaðan þræðir raktir til nútímans með vangaveltum um hlutverk kirkjunnar í sundurleitu samfélagi nútímans. Hugtakið þjóðkirkja hefur í sér fólginn þann skilning sem lútherskir guðfræðingar hafa löngum lagt í samband ríkis og kirkju í löndum mótmælenda. Kirkjan er málstofa trúarinnar þar sem kristinn einstaklingur nýtur frelsis til að íhuga með öðrum trú sína og trúarreynslu. Ungbarnaskírn markar upphaf ævilangrar samfylgdar. Kirkjan lagar sig að samfélaginu og þótt innra starf hennar endurspegli að vissu leyti þjóðareinkenni er fjölhyggja ekki útilokuð. Skipulag kirkjunnar byggist á hugmyndinni um “almennan prestsdóm” og þess vegna fylgir hún svo vel lýðræðisþró- un Vesturlanda sem raun ber vitni. Fjöldi skýringarmynda prýðir bókina. Brynjólfur biskup Kirkjuhöfðingi, fræðimaður og skáld. Safn ritgerða i tilefni af 400 ára afmæii Brynjólfs Sveinssonar 14. september 2005. Háskólaútgáfan hefur gefið út safn fræðigreina um Brynjólf biskup Sveinsson. í kynningu segir meðal ann- ars: „Brynjólfur Sveinsson biskup er heillandi persóna í (slandssögunni. Hann var maður stórbrotinna andstæðna. Hugur hans hneigðist til fræðaiðkana í háskólum meg- inlandsins, og Ijóst var að hann hafði alla burði til að skara fram úr á þeim vettvangi. Þó hlýddi hann boði konungs um að vígjast til biskups í Skálholti þar sem hann gerðist framkvæmdamikill og stjórnsamur kirkjuhöfðingi sem hafði varanleg áhrif á íslenskt þjóðfélag og menningu. Hann var talsmaður lúterskrar siðbótar en orti einnig hjartnæm kvæði til Maríu guðsmóður. Honum var annt um heiður og framgang fjölskyldu sinnar og var stoltur af börnum sínum. En í augum nútímamanna virðist hann hafa komið fram af hörku við dóttur sína Ragnheiði í málum hennar og Daða Halldórssonar. Harmþrungin örlög hennar vörpuðu dökkum skugga á líf hans. Rit þetta varpar fjölþættu Ijósi á manninn Brynjólf, á stjórnlist hans og fræðastörf, auk þess sem listum og menningu samtíma hans eru gerð skil. Um tuttugu fræðimenn, innlendir og erlendir og af ólíkum fræðasvið- um, komu að samningu þess, en það er gefið út í tilefni af því að fjórar aldir eru liðnar frá fæðingu hins merka Skálholtsbiskups." Ritstjórar eru Torfi H. Tulinius, Sigurður Pétursson og Jón Páisson. í höndum þínum minn herra Guð hefur þú teiknað mig. Brot úr sálmum séra Ólafs Jónssonar á Söndum í Dýrafirði Úrval úr sálmakveðskap séra Ólafs Jónssonar á Söndum í Dýrafirði (1560-1627) er komið út hjá Háskólaútgáfunni. Séra Ólafur var þekkt skáld á sinni tíð og er kveðskapur hans vfða varðveittur í handritum. Hér birtist í fyrsta sinn á prenti úrval kvæða hans og sálma. Matthías Johannessen skáld valdi þau brot sem hér eru gefin út og segir m.a. í inngangi sínum: „Ástæðan til þess ég fékk áhuga á sálmum séra Ólafs á Söndum voru ekki gæði þeirra, heldur að mínu viti sú augljósa staðreynd að þeir eru undanfari sálmakveðskapar Hallgríms Péturssonar - og þá ekki sízt Passíusálmanna. Þeir eru þannig eins konar hreyfiafl í sögu íslenzkrar Ijóðlistar, og sem slíkir harla merkilegur áfangi í þess- um vinsælasta þætti skáldskaparsögu okkar, þar sem Passíusálmarnir eru. Mér er til efs að séra Hallgrímur hefði ort Passíusálmana með þeim hætti sem raun ber vitni, ef hann hefði ekki þekkt til kveðskapar Ólafs á Söndum." Upp á sigurhæðir Saga Matthíasar Jochumsonar JPV útgáfa hefur gefið út bókina Upp á sigurhæðir - Saga Matthíasar Jochumsonar eftir Þórunni Valdimarsdóttur. í kynningu segir meðal annars: „Matthías Jochumsson var tilfinningaheitur eldhugi, framsýnn, réttsýnn, dáður og elskaður af þjóð sinni en stundum líka fyrirlitinn og jafnvel hataður. Sem prestur, rit- stjóri og þjóðskáld setti hann sterkan svip á íslenska menn- ingu samtíðar sinnar og hafði djúp áhrif á alla sem til hans þekktu, svo opinskár og einlægur sem hann var í list sinni og lífsviðhorfum. [..] Þórunn byggir á fjöldamörgum heim- ildum, innlendum sem erlendum, auk þess sem hún styðst við bréf og ýmis önnur persónuleg gögn sem koma hér í fyrsta skipti fyrir almennings sjónir. “ Leitin að tilgangi lífsins Siðfræðistofnun Háskóla íslands hefur gefið út bókina Leitin að tilgangi lífsins. Höfundur þessarar bókar, Viktor E. Frankl, er austurrískur geðlæknir og er upphafsmaður þeirrar kenningar í sálarfræði sem nefnd er lógóþerapía. Þar er lögð áhersla á að í lífi sérhvers manns sé einstakur tilgangur sem hver og einn verði að finna fyrir sjálfan sig. Þessi tilgangur gefi lífinu gildi. í kynningu segir:

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.