Tónamál - 01.02.1977, Side 8

Tónamál - 01.02.1977, Side 8
Bjarni Böðvarsson. Sinfóníuhljómsveit er aðeins hugtak hér um slóðir. Bílum er að fjölga í bænum, þótt ennþá séu notaðar hestakerrur og hestasleðar til að flytja ísinn af Tjörn- inni í íshúsin. Sími er kominn svo til yfir landið norð- ur og austur, þótt maður þurfi að tala hátt í landssím- ann svo til manns heyrist. Reykjavík fannst mér réttnefni á þessum bæ í kvos- inni innan Hringbrautar, þegar ég kem hingað ungur maður að norðan. Reykský úr kolakyntum ofnum og reykháfum húsanna hvíldi hér yfir bænum, því ennþá var hitaveitan framtíðardraumur. Hitaveitufram- kvæmdirnar áttu síðar eftir að verða vinna til bjarg- ræðis félagi okkar, þegar við þá lentum í erfiðri vinnudeilu. Aðalatvinnuvegur íslenzkra hljófæraleikara á þess- um fyrstu árum FÍH eru „bal]"-húsin í bænum, en þar á ég við Iðnó, KR-húsið og Gúttó. Ekki var þó þessi vettvangur algerlega tryggur okkar félögum, því snemma eigum við í deilum við KR-húsið út af utan- félagsmönnum íslenzkum, sem undirbjóða taxta okk- ar. Það var því fleira fyrir okkur að berjast við en út- lendingavandamálið. En smám saman fengum við að setja einn og einn íslending inn í þessar fínu hljóm- sveitir frá Evrópu. Satt er það, að margir voru þeir stórsnjallir þessir erlendu spilarar. Má því segja, að við nytum góðs af samstarfi við marga þeirra næstu árin. Þá var mikill fengur í mörgum góðum mönnum, sem settust hér að og gerðust félagar okkar síðar. En við urðum í þá daga að vera samkeppnisfærir og það á stundinni. Á Borg- inni voru tvær hljómsveitir, sérhæfðar, önnur fyrir dansmúsik en hin fyrir létt-klassik. Á Hótel ísland ann- aðist sama hljómsveitin hvoru tveggja. Oddfellow opn- aði á þessum árum með 4 Spánverja og einn íslend- ing. Hótel ísland hafði einnig einn íslending, en á Borginni var einn og einn. Ekkert hafði félagið sem slíkt samið fyrir þessa menn ennþá. Það var því ekkert smáumhugsunarefni fyrir Bjarna, þegar loks hyllti undir þann möguleika að semja við bæði Jóhannes á Borg og Rosenberg á Hótel ísland í nafni félagsins, raunar í fyrsta sinn. Ég sat við hliðina á Bjarna í hljómsveit Aage Lor- ange í Oddfellowhúsinu, þegar þetta var á döfinni. Marga fundi átti Bjarni einn með þeim Jóhannesi og Rosenberg, og fékk ég þá oft nýjustu fréttirnar sagðar af Bjarna milli laga á pallinum. Eitt sinn sagði hann mér brosandi: „Það hitnaði svo í kolunum á fundi með þeim, að minnstu munaði að mér væri hent á dyr. Ég slakaði á, brosti og sagði eitthvað vingjarnlegt og þeir jöfnuðu sig. Við skildum svo beztu mátar." Oft átti ég 8 TÓNAMÁL

x

Tónamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tónamál
https://timarit.is/publication/1511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.