Tónamál - 01.02.1977, Blaðsíða 11
Arnaðaróskir
Á fjörutíu og fimm ára afmæli Félags íslenzkra
hljómlistarmanna hlýtur stofnun félagsins aS sjálf-
sögðu aS teljast merkasti áfanginn í sögu þess.
Nokkrir ungir menn verða sér þess meðvitandi, að
með því að standa saman, stofna félag, munu þeir
frekar fá einhverju til leiðar komið í kjarabaráttunni,
heldur en ef hver reyndi að ota sínum tota.
Annan áfanga og allt eins sterkan, rel ég vera þann,
að félagið eignast eigiÖ húsnæði. Fyrst að Óðinsgötu
og síðan hina veglegu eign félagsins þar sem er hæðin
að Laufásvegi 40. Það gerðist þegar félagið var um
það bil 35 ára.
Á þessum 35 árum, sem þarna liðu á milli, hafði
margt og merkilegt gerzt í launa- og kjaramálum fé-
lagsins og þau mál að allverulegu leyti komin í góða
höfn. En það er húsnæði félagsins, sem þjappar mönn-
um saman. Á skrifstofuna kemur sennilega hver ein-
asti félagi 5-10 sinnum á ári. Menn hittast, skiptast
á skoðunum - gera sér betur grein fyrir hinu umfangs-
mikla starfi, sem stjórn í jafn stóru verkalýðsfélagi og
Félag íslenzkra hljómlistarmanna er, og þarf að inna
af hendi.
Eg er svo heppinn að hafa verið í hópi hinna fjöl-
mörgu hljómlistarmanna, sem setið hafa í stjórn fé-
lagsins. Það var bæði lærdómsríkt og þroskandi. Tíma-
í síðasra blaði féll niður nafn höfundar greinar um ferð til
Finnlands. Hann er Sigurður I. Snorrason.
Svavar Gests.
frekt og oft vanþakkað á stundum, en ég sé ekki eftir
einni einustu mínútu, sem fór í störf fyrir Félag ís-
lenzkr hljómlistarmanna — væri kannski ennþá í ein-
hverri nefnd eða varastjórn ef ég væri starfandi hljóm-
listarmaÖur.
Ég óska öllum félögum Félags íslenzkra hljómlistar-
manna til hamingju á 45 ára afmæli þessa ágæta fé-
lags
Svavar Gests.
TÓNAMÁL
11