Tónamál - 01.02.1977, Síða 17

Tónamál - 01.02.1977, Síða 17
Sven Blommé Sven Blommé. Sven Blommé var í því einvala liði, sem kom til ís- lands 1965 til að halda stjórnarfund Nordisk Musiker Union, þann fyrsta, sem haldinn var hér. Þá var hann aðalritari samtakanna og hafði verið kosinn 1962. Þó FÍH hafi á árunum 1934, 1939 og 1951 nálgast NMU þrep af þrepi, þá var aðildin nánast nafnið eitt fram til þessa fundar. Þessi fundur markaði tímamót í samskiptum íslenzkra hljómlistarmanna við umheim- inn, því allar götur síðan hefur FÍH tekið fullan þátt í störfum sambandsins. Samstarf okkar við Sven Blommé hefur verið með þeim ágætum, að ekki verður betur á kosið. Hann hef- ur ætíð reynst okkur vel í hvívetna. Þegar Freddy Anderson lét af störfum sem formað- ur sænska hljómlistarmannafélagsins, þótti Sven Blommé sjálfkjörinn í hans stað. Starf hans fyrir starfs- bræður okkar í Svíþjóð hefur verið ómetanlegt. í ört minnkandi heimi hefur hann verið ötull tals- maður þess, að hljómlistarmenn úr öllum heimshlut- um sameinuðust um hagsmunamál sín, og að norrænir hljómlistarmenn stæðu ávallt saman sem ein órofa heild. Sem dæmi um hug hans til alþjóðasamstarfs, þá sendi sænska félagið í hans stjórnartíð FIM (Alþjóða- samband hljómlistarmanna) ríflega fjárhæð, sem nam skuldum, er það hafði safnað á nokkrum árum. A s.l. sumri héldu svo Svíar þing FIM með myndarbrag. Þann 31. desember s.l. lét Sven Blommé af störfum, en á því ári náði hann 60 ára aldri, sem enginn gæti ímyndað sér, og varð að fara á eftirlaun, þrátt fyrir óbilandi lífsorku og áhuga. Það er von mín og ósk, að frú Gulli og Sven Blommé verði langra og hamingjuríkra lífdaga auðið á hinu nýbyggða sveitasetri, sem þau hafa nú flutzt til, og sambandið við þau haldist um ókomna framtíð. Sem lítinn þakklætisvott fyrir hans margvíslegu störf í þágu hljómlistarmanna, hefur FÍH boðið þeim hjónum að vera gesti sína á 45 ára afmæli félagsins. Sverrir Garðarsson. TÓNAMÁL 17

x

Tónamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tónamál
https://timarit.is/publication/1511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.