Tónamál - 01.02.1977, Side 23

Tónamál - 01.02.1977, Side 23
Svívirðing við stéttina segja þeir í Alfa Betu um starf umboðsmanna. Ágúst Atlason genginn í hljómsveitina Ágúst Atlason, sem kunnastur er fyrir söng sinn með Ríó Tríóinu, hefur gengið til liðs við hljómsveit- ina Alfa Betu - og kemur hann í stað Atla Viðars Jónssonar, sem lét af störfum í hljómsveitinni nú um áramótin. Ágúst mun leika á bassa í Alfa Betu, en á það hljóðfæri lék hann meðan hann var í hljómsveit Ólafs Gauks fyrir nokkrum árum. — Ég byrjaði að leika á bassa með Ólafi Gauk, sagði Ágúst, er Nú-tíminn hitti þá félaga í Alfa Betu að máli í vikunni, og hafði ekki snert fyrr á þessu hljóðfæri. Mér finnst ánægjulegt að vera kominn í hljómsveit aftur, og það er gott að vera með annan fótinn í þessu, sagði Ágúst, en þeir félagarnir í Alfa Betu, Guðmundur Haukur, Halldór og Ágúst, vinna allir með spilamennskunni. Þeir félagarnir sögðust hafa gefið sér það nýárslof- orð að verða betri og stéttvísari menn á þessu ári - og bað Nútíminn um frekari skýringar á þessu loforði. •—■ Það sem við eigum við með þessu er það stétt- vísa fyrirbrigði, að segja skilið við umboðsmenn á þeim grundvelli, sem þeir bjóða okkur. Okkur finnst það fáránlegt, að menn geti setið einhvers staðar úti í bæ og beðið eftir að menn hringi í þá og biðji um TÓNAMÁL hljómsveit. Síðan hringja umboðsmenn í hljómsveitar- menn og bjóða þeim starf gegn því að fá 10% af þeirra launum. Þetta er hrein svívirðing við stéttina. Við litum á þetta sem atvinnumiðlun í ábataskyni, og teljum að þetta sé ólöglegt fyrirbrigði samkvæmt landslögum. Strákarnir sögðu, að þessir svonefndu umboðsmenn væru ekki umboðsmenn þeirra, því þeir hefðu ekki hagsmuni hljómlistarmanna eða tónlistar í huga, held- ur væri hér um að ræða starf, sem væri unnið fyrst og fremst í ábataskyni. Þeir kváðu eðlilegt, að forráðamenn samkomuhúsa og þeir sem ráða vildu hljómsveit á dansleik, hefðu beint samband við stéttarfélag hljómlistarmanna, þ. e. Félag ísl. hljómlistarmanna, sem veitti þessa þjónustu ókeypis. — Sú staða getur komið upp, að hljómsveit vilji ráða til sín mann til þess að vinna eitthvað ákveðið verkefni, s. s. hljómleikaferð, útihljómleika, og slíkur maður getur kallast umboðsmaður hljómsveitarinnar. Hins vegar fordæmum við þessa umboðsmennsku, sem er við líði í dag. Þótt mannabreytingar hafi átt sér stað í Alfa Betu, segja þeir félagar, að þeir muni áfram hafa það að leiðarljósi að leika skemmtilega tónlist fyrir skemmti- legt fólk. Gsal. P. S. Grein þessi er birt með Ieyfi Nútímans, en hann er hluti af dagblaðinu TÍMINN. 23

x

Tónamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tónamál
https://timarit.is/publication/1511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.