Tónamál - 01.11.1981, Blaðsíða 11
hverjar 55 klukkustundir, sem hann hefur unnið í
Þjóðleikhúsinu eða í þágu þess. Þó skal aldrei greitt
fyrir fleiri en 10 sýningar í hverju veikindatilfelli.
Veikindi ber að sanna með læknisvottorði, sé þess
krafist.
13. GREIN
Heimilt er Þjóðleikhúsinu að láta útvarpa og/eða
sjónvarpa allt að tólf mínútna upptöku af æfingu eða
leiksýningu í kynningarskyni endurgjaldslaust, ef
hljómlistarmaður þarf ekki að mæta sérstaklega.
Upptökum þessum skal lokið eigi síðar en 4 klukku-
stundum eftir að sýning hófst.
14. GREIN
Samningur þessi gildir frá 29- marz 1979 til og með
3 1. desember 1979- Framlengist hann um ár í senn
sé honum ekki sagt upp skriflega með þriggja mán-
aða fyrirvara.
Reykjavík, 29- marz 1979.
F. h. Þjóðleikhússins.
ívar H. Jónsson
F h. Félags ísl. hljómlistar-
rnanna með fyrirvara um
samþykki fundar.
Sverrir Garðarsson
Gunnar Egilsson
Helga Hauksdóttir
Gert með vitund fjármála-
ráðuneytisins.
Guðm. Karl Jónsson
YFIRLÝSING
Félag íslenzkra hljómlistarmanna lýsir því hér með
yfir að Þjóðleikhúsinu er heimilt að greiða aðeins
20% af eftirmiðdags sýningarkaupi fýrir afnot hljóð-
ntunar, þegar um sjálfstæðar ballettsýningar ísl.
dansflokksins er að ræða.
Yfirlýsingu þessa ber að skoða sem stuðning með-
lima Félags íslenzkra hljómlistarmanna við íslenzka
dansflokkinn.
Yfirlýsing þessi er uppsegjanleg með sama fýrir-
vara og samningur sá sem undirritaður var í dag.
TÓNAMÁL
Hægt er að segja upp yfirlýsingunni án uppsagnar-
samningsins.
Reykjavík, 29. marz 1979-
F. h. Félags ísl. hljómlistar- Samþykkur ofanrituðu f. h.
manna með fyrirvara um Þjóðleikhússins.
samþykki fundar í félaginu. Ivar H. Jónsson
Sverrir Garðarsson
Gunnar Egilsson
Helga Hauksdóttir
YFIRLÝSING
Félag ísl. hljómlistarmanna sér um útreikning og
útskrift fullnægjandi reikninga eftir vinnuskýrslum
eins og verið hefur.
Einnig tekur F.I.H. að sér gerð spjaldskrár yfir
hljóðritanir um leið og þær eru framkvæmdar og
viðhalda þeim.
Hljóðritanirnar verða í vörslu Þjóðleikhússins og
er því óheimilt að selja, leigja eða lána út hljóðritanir
nema með leyfl F.I.H.
Varðandi ákvæði um greiðslur í veikindatilfellum
í 12. grein samnings þess sem undirritaður var í dag
sér F.I.H. um gerð og viðhald spjaldskrár eftir
vinnuskýrslum yfir hvern einstakan hljómlistar-
mann, sem starfar á vegum Þjóðleikhússins.
Oðlist hljómlistarmaður rétt til greiðslu í veik-
indatilfellum, skal F.I.H. senda ljósrit af spjald-
skrárkorti viðkomandi með launareikningi, ásamt
læknisvottorði sé þess óskað.
Fyrir framanritað greiðir Þjóðleikhúsið 1% í
þjónustugjald til F.I.H.
Greiðsla fýrir vinnu F.I.H. vegna spjaldskrár-
gerðar yfir hljóðritanir og vegna veikindaákvæða
skal metin og endurskoðun þjónustugjalds skal fara
fram á samningstímanum.
Reykjavík, 29. marz 1979.
F.h. F.l.H. með Sverrir Garðarsson F.h.
fyrirvara um sam- Gunnar Egilsson Þjóðleikhússins
þykki fundar. Helga Hauksdóttir jvar [ | jónsson
11