Tónamál - 01.11.1981, Blaðsíða 19

Tónamál - 01.11.1981, Blaðsíða 19
„Eftir söngleik“ Tveir nemendur í Tónlistarskóla íslands luku á laugardaginn einleikararprófum á tónleikum með Sinfóníuhljómsveitinni í Háskólabíói. Þar var hvert sæti skipað og meira til. Aheyrendur tjáðu hrifningu Qg þökk að atriðum loknum. Við greindum að saman fór gáfa, vilji og einbeiting. Og við sam- glöddumst ungum mönnum í áfangastað. Eftir á kemur mér ýmislegt í hug. Sinfóníuhljómsveit Islands varð til fyrir ástríðu- fulla baráttu listamanna og listunnenda. Margir töldu að hún væri „getin í synd“. Fjárveitingar hafa ekki legið á lausu. Ferillinn minnir á siglingu milli skerja. Viðureignin um Sinfóníuhljómsveitina sýnir ytri baráttu listamanna í hnotskurn: að þróa listskyn og byggja upp aðstöðu til starfa. Hljómsveitin er senn þrítug. „Hún hefir á þess- um tíma orðið undirstaða og meginstoð sígildrar tónlistar á Islandi í mörgum greinum," segir Andrés Björnsson. Þúsund áheyrendur fengu þessi ummæli staðfest í Háskólabíói á laugardaginn var. A hverju máli eru tvær hliðar eða fleiri. — Listamenn og „landsfeður" takast á um fjölda hljóm- sveitarmanna. Fyrsta tilraun að fá Sinfóníuhljóm- sveit Islands stoð í lögum fór út um þúfur, m. a. vegna þess. Þrálátur áróður, sem ég óttast að sé snobb í neðsta en gæti verið sprottinn af gáleysi, segir: æðri tónlist et aðeins fyrir „fína fólkið“. Nýlega hefúr verið sannað með könnun, að fáir hlusta á sinfóníutónleika í útvarpinu. Islendingar hafa nú meðtekið 11. boðorðið: þú skalt ekki verja fjármunum þfnum í almannaþágu heldur sóa þeim sjálfur. Þessar hugrenningar þröngva mér til að biðja gott fólk að líta með mér yfir þennan tossalista: tónamál — íslendingar eru fámennir og hljóta að sníða sér stakkinn eftir vextinum. — Það er ekki þar með sagt, að þeir séu blankir. — Aftur á móti er komið á daginn, að leiðrétta ber alvarlegar segulskekkjur í efnahagslífinu. — Meira að segja kemur til greina að taka upp ráðdeild yfir alla línuna. — Þar fyrir er þarflaust að kyrkja nytjagróður á vori. I tónlistarmálum eru útlínur glöggar: Verja hvem fenginn vinning (,,þessa klukku má ekki brjóta“.) Efla tónmennt og þróa listskyn með alþýðu. Búa tónlistarfólk- inu aðstóðu til að nema og starfa og stefna hátt. Vilhjálmur Hjálmarsson. (Morgunblaðið 7. febrúar 1979) 19

x

Tónamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tónamál
https://timarit.is/publication/1511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.