Tónamál - 01.11.1981, Blaðsíða 21

Tónamál - 01.11.1981, Blaðsíða 21
Minning Það mun hafa verið 1954 sem fundum okkar Höskuldar bar saman. Var hann þá starfandi hljóðfæraleikari í Vestmannaeyj- um. Með okkur tókst strax góð vinátta sem entist til síðasta dags enda gerðist hann minn fyrsti leið- beinandi á trompet og bý ég enn þann dag í dag að mörgu af því sem hann kenndi mér þá. Höskuldur var afbragðs kennari, þolinmóður og skilningsríkur eins og hinn stóri hópur nemenda. sem hann féll frá, ber augljóslega vitni um. Höskuldur átti ekki langt að sækja tónlistargáfu sína þar sem hann var sonur hins góðkunna cellóleikara, Þórhallar Arnasonar og fyrstu konu hans, Klöru, sem var þýskrar ættar. Hjá henni ólst Höskuldur upp til 17 ára aldurs en Kom þá alkominn til íslands og hélt áfram tónlistarnámi undir handleiðslu föður síns. Fljótlega upp úr því var Hösk- uldur farinn að taka þátt í íslenzku tónlistarlífi meðal okkar beztu t Höskuldur Þórhallsson Fæddur 11. ágúst 1921 Dáinn 19. febrúar 1979 hljómlistarmanna. Hann lék á helztu dansstöðum og var um ára- bil í Utvarpshljómsveitinni. Arið 1943 gekk hann að eiga Asdísi Jónatansdóttur og átti með henni einn son, Gunnlaug Þröst, sem nú fetar í fótspor föður síns sem leiðbeinandi á Höfn í Horna- firði. Höskuldur var tíður gestur á heimili mínu síðustu 6 æfiárin og naut ég í ríkum mæli afburða frá- sagnargáfu hans. Tveim árum fyrir andlát sitt fékk hann eftirfarandi yfirlýsingu frá lækni sínum: „Ég verð feginn ef ég sé þig að ári“. Svo Höskuldur fór ekki i' neinar grafgötur að hverju dró. Annarri eins karl- mennsku hefði ég aldrei búist við af nokkrum manni, og býst ekki við að kynnast, en með slíku æðruleysi beið hann hins óumflýj- anlega. Ég mun ætíð minnast hans með mikilli virðingu og þökk fyrir samfylgdina. Viðar Alfreðsson TÓNAMÁL 21

x

Tónamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tónamál
https://timarit.is/publication/1511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.