Tónamál - 01.11.1981, Blaðsíða 15
16. GREIN
Verði á samningstímanum sett lög, sem breyta ákvæðum þessa
samnings um greiðslu verðlagsuppbóta á laun, er hvorum aðila
um sig heimilt að segja upp kaupgjaldsákvæðum samningsins
með eins mánaðar fýrírvara.
17. GREIN
Deilum um kaup og kjör eða hliðstæðum ágreiningi launþega
og vinnuveitenda, sem upp kunna að koma á samningstím-
anum, er hvorum aðila samnings þessa heimilt að vísa til
meðferðar fastanefndar Vinnuveitendasambands Islands og Al-
þýðusambands Islands áður en gengið verður til félagslegra
aðgerða eða dómstóla.
18. GREIN
Samningur þessi gildir frá 17. nóvember 1980 til 1. nóvember
1981 og er uppsegjanlegur af hálfu beggja aðila með eins
mánaðar fyrirvara. Sé honum ekki sagt upp, framlengist hann
um þrjá mánuði í senn með sama uppsagnarfresti.
Yfirlýsingar frá 8. júní 1970 og 26. maí 1972 haidi gildi
sínu.
Reykjavík, 19. nóvember 1980
Vinnuveitendasamband íslands f. h. Sambands veitinga- og
gistihúsaeigenda með fýrirvara um samþykki félagsfundar.
Jónas Sveinsson (sign.)
Hólmfr. Árnadóttir. (sign.)
Félag íslenskra hljómlistarmanna með fýrirvara um samþykki
félagsfundar
Sverrir Garðarsson (sign.)
YFIRLÝSINGAR
Að gefnu tilefni lýsir Samband veitinga- og gistihúsaeigenda
og Félag íslenskra hljómlistarmanna því hér með yfir, að ekki
ber að iíta á hljómsveitarstjóra sem sjálfstæðan atvinnurekenda
eða verktaka enda er hann eingöngu verkstjóri hljómlistar-
manna á vinnustað. — Hljómsveitarstjóra ber að leggja fram
sundurliðaðan reikning með fullnægjandi upplýsingum m. a.
með nöfnum hljómlistarmanna, heimilisföngum, fæðingar-
dögum og nafnnúmerum.
Reykjavík, 8. júlí 1970
F. h. Félags íslenskra hljómlistarmanna
Sverrir Garðarsson
F. h. Sambands veitinga- og gistihúsaeigenda
Konráð Guðmundsson
Aðilar að samningi á milli Félags íslenskra hljómlistarmanna
og S.V.G. eru sammála um, að álag það, sem getið er um í 3.
og 4. gr. samnings kemur ekki á fatapeninga- og verkfæragjald
skv. 1. gr.
Reykjavík, 26. maí 1972
F. h. Sambands veitinga- og gistihúsaeigenda
Sigurjón Ragnarsson
F. h. Félags íslenskra hljómlistarmanna
Sverrir Garðarsson.
tónamál
15