Tónamál - 01.11.1981, Side 12
Nýir kjarasamningar
KJARASAMNINGUR
F.I.H. og Vinnuveitendasambands íslandsf.h. Sambands
veitinga- og gisdhúsaeigenda frá 17. nóvember 1980.
1. GREIN
A. Tímakaup hljómlistarmanna skal fundir á eftirfarandi hátt:
Viðmiðunarlaun í september 1980 kr. 433-576.
Tímakaup = (433.576 -4- 173,33) X 1,8 = kr. 4.502.
Æfingargjald —(4502^ —R8J _ ^qq kr pr greyjaklst.
B. Lágmarksgrunnlaun hljómlistarmanna, sem hafa tryggð
laun fyrir 17 klst. ákveðna daga í viku, skulu vera 76.534 á
viku. Ef hljómlistarmanni er tryggð styttri vinnaen 17 klst.
á viku, skulu lágmarkslaun vera hlutfallsleg.
C. Lágmarksgrunnlaun fyrir lausavinnu og aukavinnu umfram
tryggðan vinnustundafjölda, skal vera kr. 4.502 á klst. til
kl. 01.00 e. m., en eftir þann tíma greiðist 100% álag.
D. Æfingargjald er kr. 500,- fyrir hverja greidda klukku-
stund. Það greiðist þó aldrei fyrir meira en 25 klst. á viku.
E. Á launaupphæðir sem í samkomulagi þessu greinir greiðast
verðbætur frá og með 1. desember 1980 skv. ákvæðum laga
nr. 13/1979.
F. Laun hljómsveitarstjóra, svo og þeirra hljómlistarmanna,
sem leika einir, skal vera 50% hærra en kaup annarra
hljómlistarmanna.
G. Veitingamaður greiði hverjum hljómlistarmanni vegna
fatakostnaðar 3% af launum skv. B, C og D eða láti honum
í té einn fatnað á ári.
H. Orlof verði 8,33%, en 9,5% hjá þeim, sem unnið hafa 1 ár
eða lengur að hljómlistarstörfum, og 10% hjá þeim, sem
unnið hafa 3 ár eða lengur hjá sama vinnuveitanda. Sá sem
öðlast hefir rétt til 10% orlofs, glatar honum ekki þótt
hann skipti um vinnustað.
I. Verkfærapeningar reiknist 14% á laun skv. B, C og D.
J. Meðlimir S.V.G. greiði í Lífeyrissjóð F.Í.H. 6% af launum
hljómlistarmanna og dragi 4% af launum hans gegn kvitt-
un í hvert sinn sem laun eru greidd. Fénu skal skilað
mánaðarlega á skrifstofu F.Í.H., Laufásvegi 40. Greiðsla í
lífeyrissjóð vegna þeirra manna, er hafa tryggða 17 klst.
vinnu á viku, miðast þó aðeins við fastalaun.
K. Hljómlistarmaður sem vinnur í einn mánuð á sama stað
skal hafa eins mánaðar uppsagnarfrest miðað við mánaða-
mót, nema um sé að ræða skriflegan ráðningarsamning til
ákveðins tíma. Uppsagnarfrestur er gagnkvæmur.
Áunnin réttindi skulu haldast verði um endurráðningu að
ræða innan eins árs.
12
L. Meðlimir S.V.G. greiði 1% í Sjúkrasjóð F.Í.H., og 0,25%
í Orlofsheimilasjóð F.Í.H. af öllu kaupi, samkvæmt ut-
reikningi skattstofu í viðkomandi umdæmi.
M. Lausráðnir hljómlistarmenn, sem aðeins eru ráðnir 1 eða 2
kvöld í senn skulu fá greiddan kostnað vegna flutnings a
hljóðfærum. Greiðsla þessi skal vera 10% af launum og
greiðist eigi fyrir þann hluta ráðningarinnar sem er umfram
12 stundir. Hafi hljómsveit sérstakan ökumann til flutn-
ings á hljóðfærum renna greiðslur þessar til hans og færást
honum til tekna.
N. Sé við ráðningu lausráðinnar popphljómsveitar tekið fram,
að aðstoðarmaður fylgi henni, skal við sundurliðun reikn-
ings við það miðað, að laun aðsroðarmannsins séu 70% af
launum hljómlistarmanna skv. B, C og D.
O. Greiðslum vegna aksturs, svo og verkfærapeningum, verði
við framtal til skatts ekki blandað saman við vinnulaun,
heldur skulu greiðslur þessar tíundaðar sérstaklega á þar til
gerðum reitum launamiðanna.
2. GREIN
Kvaðning til vinnu skal aldrei reiknast seinna en kl. 21.00.
Kvaðning á föstudögum, laugardögum og sunnudögum skal
þó reiknast frá kl. 20.00 og einnig á fimmtudögum hjá þeim
veitingahúsum, sem hafa aðeins opið til kl. 23-30.
Fyrir kvaðningu greiðaSt minnst 2 1/2 klst.
Lágmarkskvaðning á laugardögum skal þó minnst vera 5
stundir.
3. GREIN
A eftirtöldum dögum greiðist öll vinna með 25% álagi: Nýárs-
dag, skírdag, páskadag, 2. í páskum, sumardaginn fyrsta,
uppstigningardag, 1. maí, hvítasunnudag, 2. í hvítasunnu,
jóladag og 2. í jólum.
4. GREIN
A gamlárskvöld og 17. júní reiknast öll vinna 100% hærri en
almennt tímakaup, svo og öll vinna eftir kl. 01.00 á miðnætu
hvern dag.
5. GREIN
Fyrir endurvarp á tónlist frá samkomustað til notkunar utan
húss eða í öðrum salarkynnum, þar sem óviðkomandi samkoma
fer fram, greiðist 25% aukagjald.
6. GREIN
Hljómsveitum starfandi hjá meðlimum S.V.G. ber að skila
eðlilegum æfingum vegna starfs síns. Fyrir aukaæfingar ber að
TÓNAMÁL