Tónamál - 01.11.1981, Page 25

Tónamál - 01.11.1981, Page 25
breytingaleysi og fásinni valda honum oft vonbrigðum. Samt gefur hann endanlega upp áform wm búsetu með framandi þjóð. Það verður landi til láns. — Með frekara framhaldsnámi hefði Þór- arni vafalaust tekist að verða heimsfrægur einleikari, svo söng- n'kur var tónn hans, svo fyrirhafn- arlítil voru honum öll gígjugrip °g bogans brögð. En þá hefði ætt- jörðin ekki notið krafta hans og brautryðjandastarfs sem uppal- anda. Island hefði máske eignast sinn Kreisler en engan fiðlukenn- ara. Og við þáverandi aðstæður var þjóðinni meira um vert að eiga landsföðurlegan fiðlara en farand- virtúós. Tvímælalaust má því telja Þór- arin með þjóðnýtu kennslustarfi sinu, einn meðal merkustu íslend- mga þessarar aldar. Hann kynnir fiðluna sem eitt hið undraverðasta hljóðfæri allra tíma og elur upp tvær kynslóðir nemenda, er verða stofn að fjölskrúðugum samleik vaknandi tónmenntalífs. Kjarni núverandi konserthljómsveitar er árangur af ævistarfi hans. Og naörg íslensk tónskáld eiga hand- leiðslu hans mikið að þakka. Sem lagahöfundur er Þórarinn fandskunnur. Enda þótt metnaður hans beindist ekki að orðstír tón- skálds, hefir honum auðnast að skapa söngstef, sem gjarna gleðja hvers manns hlustir. Hann hittir þann tón sem án allra heilabrota TÓNAMÁL túlkar gleði og þrá í látlausu formi. Fögnuður tjáningar er hon- um ríkari en hvers kyns tregi, gaman yfirgnæflr alvöru. Sem sannur músíkant syngur hann af hjartans lyst, laus við allar efa- semdir, fjarri öllum fræðilegum útreikningum. Þannig bera lög hans vitni hugarkæti og fölskva- lausri tilfinningu þess manns, sem Hávamál lýsa svo: Glaður og reif- ur skyli gumna hverr. Enda þótt Þórarinn segðist ekki vera mikill félagsmaður og hafa óbeit á pólitík, þá eru þó afrek hans á sviði ýmissa almennra sam- taka sögulegur kapítuli. Hæst ber þar stofnun Hljómsveitar Reykja- víkur árið 1921, sem Þórarinn stjórnaði fýrstur allra, bæði sem formaður og hljómsveitarstjóri. An tilkomu hans hefði slíkur flokkur svo snemma ekki ýtt úr vör. Þetta var fyrsta hljómsveit Is- lands og undanfari allra síðari samleikshópa klassískra hljóðfæra. Attaárum síðar, ásumardaginn fyrsta 1929, hefir Þórarinn æft efnisskrá með 20 nemendum sín- um og stjórnar á hljómleikum þessari nýstárlegu barnahljóm- sveit. Svo mörg fiðluleikandi börn höfðu hér aldrei fyrr saman komið á konsertpalli. Var þetta þá, og er reyndar enn, einstæður viðburður og mikil hvatning upprennandi viðleitni í tónlistaruppeldi. Þann- ig var Þórarinn merkisberi í fé- lagslegum samtökum, bæði með- al uppvaxandi og fúllvaxinnar kynslóðar. Sem starfsmaður Ríkisútvarps- ins frá byrjun þess hvíldi mikill hluti lifandi músíkflutnings á herðum Þórarins. Hér lék hann iðulega einn og með öðrum, bæði í tríói, kvartett og í hljómsveit útvarpsins, sem hann svo stjórn- aði, er liðsmönnum fjölgaði. Var hann ætíð vinsæll og vinmargur í samstilltum hópi hljóðfæraleik- ara. Og þegar við, nokkrir með- limir í FÍH, stofnuðum Hljóm- sveit félags ísl. hljófæraleikara ár- ið 1944, gerðist hann fúslega kon- sertmeistari. Samstarfsvilji Þórar- ins kom þá ekki síður fram við stofnun Félags ísl. tónlistarmanna árið 1940, en þar gegndi hann fyrstur manna formannsstörfum. Af framanskráðu má ráða, hve margvíst hefir verið ævistarf Þór- arins. Þrátt fyrir oft æði langan vinnudag, var hann jafnan skap- léttur. Lífskraftur hans var ótrú- lega mikill, og spaugsyrði voru honum ávallt tiltæk. Að eðlisfari var hann bjartsýnismaður, kátur í lund og ljúfur í viðmóti. í kennslustundum mínum hjá Þórarni minnist ég þess aldrei, að hann yrði þykkjuþungur né brygði skapi, þótt taktur riðlaðist eða óhreinn tónn óprýddi lag. Slíkt var langlundargeð hans og sálrænt innsæi. Barn varð að með- höndla af varfærni og laða það með Framhald á hls. 28 25

x

Tónamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tónamál
https://timarit.is/publication/1511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.