Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2008, Page 8
M A R T i N K N u D S E N á J ó M F R ú N N i
Danski vísnasöngvarinn Martin Knudsen hefur í
tuttugu ár hefur skemmt löndum sínum með vísna-
söng við miklar vinsældir. Hann hóf ferilinn 12 ára í
sumarrevíum á Fjóni og hefur síðan fetað sig mark-
visst upp á við. um árabil hefur hann komið fram á
skemmtunum í Cirkusbygningen, gamla fjölleikahúsinu
í Kaupmannahöfn, og þar í húsi hefur hann m.a. staðið
fyrir skemmtunum á sérstökum Grand Prix Bar sem
flytur Eurovision-lög og er hans eigið uppátæki. Þá má
stöku sinnum heyra hann taka lagið á Centralhjørnet,
einum af eldri hommabörum Norður-Evrópu.
Söngvar Martins eru klassískir og kunnuglegir. Þeir
sem kunna að meta danskt smurbrauð eiga líka að
þekkja vísur og revíulög eins og „Jeg har elsket dig så
længe jeg kan mindes“ og „Man blir så glad nå solen
skinner“. Martin leggur áherslu á það sem skiptir máli
í sígildum vísnasöng, það fyndna, fjöruga og alþýðlega,
því eins og hann segir sjálfur: „Þegar ég treð upp legg
ég alla áherslu á eininguna, lífsgleðina og virðing-
una fyrir því gamla og góða sem er kjarninn í þessum
stórkostlegu söngvum fortíðarinnar.“
Martin Knudsen skemmtir á veitingahúsinu Jóm-
frúnni í hádeginu, fimmtudaginn 7. og og föstudaginn 8.
ágúst. Með honum í för er undirleikari hans Torben. Við
bjóðum þá félaga velkomna til Íslands.
www.martin-knudsen.dk
tHe SOnGS My GRAnny tOUGHt Me
Martin Knudsen from Copenhagen is one of our many
gay stars from abroad at Reykjavík Gay Pride this
year, performing Danish ballads and classical revue
songs with all the humour and charm which carac-
terises this form of music. Accompanied by pianist
torben, he will perform in the only Danish restaurant
in Reykjavík, Jómfrúin, at noon, thursday, 7 August,
and Friday, 8 August. tables should be booked well
in advance.
Ég hef
elskað þig
frá okkar
fyrstu kynnum
8