Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2008, Blaðsíða 25

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2008, Blaðsíða 25
heimir már Pétursson Hvar byrjaði þetta allt? Skrautlegar stoltar konur, skringilegir málaðir strákar, skreytt börn og allir brosandi? Hvaðan kom fólkinu þessi kæruleys- islega framkoma? Hvernig stendur á því að stór hluti þjóðarinnar getur komið saman undir regnbogafánanum og fagnað því einu að vera til? er þetta ekki til marks um andlegt og líkamlegt lauslæti, já, jafnvel kæru- leysi? Getur verið að það sé svona gaman að vera til? Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride er eina hátíðin á Íslandi sem í raun fagnar engu öðru en ánægjunni af því að vera lifandi; lifandi þátttakandi í samfélagi karla og kvenna – og barna – fagnar því einu að vera manneskja. Eða eins og sagt var fyrir tíma pólitísks réttrúnaðar: Fagnar ánægj- unni af því að vera maður með mönnum. Á þessu ári gleðjumst við vegna þess að Hinsegin dagar verða haldnir í tíunda skipti. Það var árið 1999 sem einstaklingar innan og utan Samtakanna ’78 mundu eftir því að 30 ár voru liðin frá uppreisninni á Stonewall, 27. júní 1969. Og nú kunna enn að vera karlar og konur sem spyrja sig: Uppreisnin á Stonewall – hvað er það? Ráðist inn í erfidrykkju Í þúsundir ára höfðu konur verið kúgaðar í blindu feðraveldi sem neitaði þeim um til- finningalegt frelsi, allt frá vöggu siðmenn- ingarinnar hafði karlmönnum verið neitað um að elska aðra karlmenn, konur og karlar voru lamin, pyntuð, dæmd, hædd og úthýst – öldum saman. Uppreisnir voru gerðar og barðar aftur. Einstaklingar stóðu upp og voru lamdir niður. Samtök voru stofnuð og bönnuð. En svo kom dagurinn sem hinsegin fólk getur ekki gleymt. Í raun var þetta ósköp venjulegur dagur, 27. júní 1969 í New York, höfuðborg heims- menningarinnar. Það var verið að bera Judy Garland til grafar, fallna stjörnu í bókstaf- legum skilningi og víða um borgina og um heiminn allan drúpti fólk höfði í söknuði og virðingu. Það var verið að hella í glös á börum hér og þar og sums staðar voru bakaðar pönnukökur og hellt upp á kaffi. En á einum litlum bar í Green Vill, neðarlega á Manhattan-eyju, voru lesbíur og hommar komin saman og söknuðu Judy Garland. Þau voru öll að syrgja hana. Litlu stelp- una sem fór til Oz og söng fallega lagið um regnbogann. Þau fundu öll til samstöðu með þessari ólánsömu leikkonu sem hafði fært heiminum svo margar ógleymanlegar stundir og hafði sjálf glímt við ofurvald og kúgun allt sitt líf. Og það var þá sem hurð- inni var hrundið upp. Það var á því augna- bliki sem hópur lögreglumanna hóf að berja á samkynhneigðum gestum þessa bars eins og venjulega. En þetta var bara ekki einsog venjulega. Ætlið þið að láta bjóða ykkur þetta? Nei, þetta var þrátt fyrir allt ekki venjulegur dagur. Þegar verið var að smala sorgmædd- um strákum og stelpum inn í löggubílana gekk eitt af frægari skáldum borgarinnar hjá og spurði stundarhátt: Ætlið þið að láta bjóða ykkur þetta? Og það var eins og hendi Guðs væri veifað. Ung lesbía braust úr fangbrögðum lögregluþjóns og sparkaði í punginn á honum. Þar með var fjandinn laus. Strákarnir og stelpurnar þeystu út úr lögreglubílunum og byrjuðu að streitast á móti lögregluþjónunum sem aldrei höfðu séð annað eins. Aldrei áður hafði hópur píulegra stráka og sterklegra kvenna sameinast gegn þeim. Aldrei áður hafði hópur af þessu fólki sameinast gegn árásum á það sjálft. Kristóferstræti í Greenwich Village logaði allt í einu í undarlegum slagsmálum. Fjölmiðlar voru ekki á staðnum vegna þess að þeir voru ekki vanir neinni mót- spyrnu úr þessari átt, en fljótlega fóru útvarpsstöðvar að greina frá slagsmálunum og fólk hópaðist niður í þorpið til að taka þátt í þessum slag. Í þrjá daga logaði neðri hluti Manhattan af glímubrögðum lögreglu, lesbía og homma og loks tóku fjölmiðlar við sér og fóru að segja fréttir. Annað eins hafði ekki gerst áður; að kynvillingar neituðu að láta berja sig. Hinsegin dagar verða til Og það var sem sagt snemma árs 1999 sem einhver mundi eftir því að það voru 30 ár frá því að Judy Garland var borin til grafar og allt varð vitlaust á Stonewall-barnum í New York. Og fólk kom saman og velti fyrir sér hvort ekki væri rétt að minnast þessa atburðar með hátíðahöldum í miðbæ höfuðborgar Íslands. Og svarið var: Jú, ættum við ekki að setja upp blandaða dag- skrá á Ingólfstorgi? Samtökin ’78 sem þá höfðu ein barist fyrir réttindum samkynhneigðra á Íslandi í um 20 ár ákváðu að fjármagna veisluna þótt lítið væri til skiptanna. Hringt var til listamanna og kvenna, fólk var fengið til að mæta, skipuleggja og gera – og viti menn, hinn 27. júní 1999 var sett upp dagskrá á Ingólfstorgi. Á árum áður, 1993 og 1994, þegar göngur höfðu verið reyndar, mættu um 70 manns og eftirvæntingin var því ekki mikil. „Hver vill láta sjá sig samkynhneigðan á almannafæri?“ spurði fólk sjálft sig sisvona og bjóst við engri mætingu frekar en áður. En þetta reyndist ekki vera venjulegur dagur. Það mættu að minnsta kosti fimmtán hundruð manns og margir þeirra „réttkyn- hneigðir“ vegna þess að það var svo mörgum mál að standa með okkur. Og þá stóðum við þarna með gleðigrettu í andlit- inu en ákaflega klumsa yfir öllum stuðn- ingnum og sum okkar fóru að velta fyrir sér hvort ekki mætti gera þetta einu sinni á ári og þá með mikilli göngu? Það var upp úr þeirri hugsun sem Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride voru stofnaðir á fámennum fundi á Laugavegi 3 á haustmánuðum 1999. Það var þessi hópur sem ákvað að skipuleggja strax á næsta ári aðra slíka hátíð OG gleðigöngu. Það var á þeim fundi sem orðið GLEÐIGANGA fæddist. Margir í hópnum efuðust um að nokkur h I n S E G I n d A G A R 10 á R A bARáttAn um ímyndInA 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.