Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2008, Síða 12

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2008, Síða 12
Það gleymir enginn Stereo Total sem einu sinni hefur heyrt og séð þetta yndislega par á sviði. Þegar þau heimsóttu Hinsegin daga árið 2002 vissu fæstir hver þau voru, en þegar þau kvöddu voru þau stjörnur á Íslandi. Skjár 1 gerði þátt um þau sem var sýndur og endursýndur margsinnis vegna mikillar eftirspurnar, og þau tróðu upp á lítt undirbúnum tónleikum víða í borginni. Nú ætla þau aftur að skella sér norður í „sumarfrí“ og fagna tíu ára afmælinu með okkur. Françoise Cactus og Brezel Göring skipa Stereo Total og flytja svo fjölbreytta tónlist að gagnrýnendur hafa löngu gefist upp á að draga þau í dilk. Sjálf leysa þau þann vanda með því að lýsa einfaldlega yfir því, alveg purkunarlaust, að Stereo Total sé besta poppsveit heims. Víst er að þau hafa alltaf farið sínar eigin leiðir. Françoise Cactus er upprunnin í Frakklandi, en fluttist til Berlínar snemma á níunda áratugnum og tók þar virkan þátt í skapandi menningaróreiðu sem kennd er við afburðasnjalla viðvaninga. Yfir káli og pylsum í kjörbúð einni fór Françoise að daðra við pilt sem reyndist vera Austur-Þjóðverji að nafni Brezel Göring, tónlistarmaður sem smíðaði sín eigin hljóðfæri og hélt úti band- brjálaðri tilraunahljómsveit undir því táknræna nafni Sigmund Freud Experience. Þau Françoise og Brezel rugluðu saman reytum sínum, stofnuðu Stereo Total og hafa síðan gefið út ótal plötur í Evrópu, Japan og Bandaríkjunum. Þau syngja einkum á móðurmálum sínum frönsku og þýsku, einnig á ensku, en þó heldur minna „því að allar þýskar hljómsveitir syngja á ensku“. Þau syngja auðvitað líka á tyrknesku, „því við búum í Berlín, fjölmennustu borg Tyrkja næst Istanbúl“ og munu að sjálfsögðu taka lagið á íslensku í sumar. Stereo Total koma fram á útihátíðinni við Arnarhól laugar- daginn 9. ágúst og síðan á tónleikum á Organ að kvöldi sama dags. kl. 21. www.stereototal.de AnD nOW FOR SOMetHinG COMPletely DiFFeRent ... FROM BeRlin the eclectic duo that forms Berlin based Stereo total, Françoise Cactus and Brezel Göring, claim their band to be the best pop group in the world. Critics say they are impossible to pigeon- hole but attempts at definitions include that they fuse the dumb energy of pop culture with the elite salon fizz of high culture; a bottomless goldmine of clever ideas, populist yet unpreten- tious; scuzzy, mischievous, exhilarating avante-garde pop, spliced with punk and garage; a thrash aesthete’s idea of heav- en; a tri-lingual, multi-disciplined, electronic, shambolic rock’n roll echo from the future. the bottom line: nobody sounds like Stereo total. emerging from the Berlin scene of „genius dilet- tantes“, the clever and funny dual combination has made a long list of records in europe, Japan and USA. Stereo total will be performing at Club Organ, Saturday, 9 August at 9 p.m., and at the Open Air Concert at Arnarhóll earlier that same day. 12 tOtAL StEREO A F t u R á S V I ‹ í R E y k j A V í k Photo by: sim gil

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.