Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2008, Síða 48
Myndlistarmaðurinn, tónlistarmaðurinn og rithöfundurinn Wolfgang Müller kom fyrst til
Íslands í boði Listahátíðar vorið 1990 með félögum sínum úr framúrstefnuhljómsveitinni Die
Tödliche Doris (1980–1987). Hann dvaldi hér síðan lengur og skemur næstu árin og gerði
Ísland, land og þjóð, beinlínis að efniviði í list sinni. Meðal annars hefur hann rýnt mikið
í þá mynd sem landar hans hafa gert sér af sögueyjunni í norðri og komið sér upp merku
safni af ferðabókum Þjóðverja um Ísland. Segja má að það lýsi manninum að áhugasviðið
nær frá framsæknu pönk-rokki til fornra ferðabóka. Wolfgang Müller var gestur Hinsegin
daga 2002 og gestakennari við Listaháskóla Íslands veturinn 2004. Hann hefur haldið
ýmsar uppákomur og listsýningar á Íslandi og þáttur hans í samsýningu íslenskra og þýskra
listamanna í Nýlistasafninu 1998 vakti mikla athygli hér heima og í Þýskalandi. Þá opnuðu
þau Ásta Ólafsdóttir myndlistarkona einkarekna Goethe-stofnun á Íslandi eftir að sú opinbera var
lögð niður í sparnaðarskyni. Wolfgang hefur gefið út tvær bækur um menningu, náttúru og mannlíf
á Íslandi, Blue Tit (1996) og Neues von der Elfenfront (2007) og samið fjölda blaðagreina. Þá hefur hann
kynnt Ísland í útvarpi og sjónvarpi og samið átta útvarpsleikrit fyrir bæjerska útvarpið sem einnig tengjast
Íslandi á einn eða annan hátt. Í næsta útvarpsleikriti má heyra raddir ellefu útdauðra fuglategunda, þar á
meðal geirfuglsins, endurgerðar samkvæmt lýsingum sem enn eru til.
Schwules Museum er einstakt í sinni röð í heiminum. Síðan 1985 hefur þar verið safnað bók-
staflega öllu sem snertir samkynhneigða, sögu þeirra og líf. Einn þáttur í þeirri sögu eru ofsóknir sem
samkynhneigðir sættu í Þriðja ríkinu, en rannsóknar- og söfnunarstarfið beinist einnig að lífi og menn-
ingu samkynhneigðra í öðrum löndum. Safnið hefur ýmsar sýningar á boðstólum og gestir í Berlín
ættu tvímælalaust að heimsækja það.
Í sýningunni á Borgarbókasafni bregður Wolfgang upp ljósmyndum sínum af 13 sam-
kynhneigðum karlmönnum sem hann hefur hitt á leið sinni um Ísland og gefur þeim jafn-
framt orðið.
www.wolfgangmueller.net
www.die-toedliche-doris.de
Schwules Museum, Mehringdamm 61, Berlin
www.schwulesmuseum.de
WOlFGAnG MülleR AnD SCHWUleS MUSeUM BeRlin
ARt exHiBitiOn in tHe FOyeR OF tHe City liBRARy,
tRyGGvAGAtA 15
lASt SHOWn in BeRlin 1995
Since 1990, when he was invited to the Reykjavík
Arts Festival, the Berlin-based artist, musician
and author Wolfgang Müller has had a strong
connection with iceland. He was founder of
the avant-garde punk band Die tödliche Doris
(1980–1987) and in 1982 he published Geniale
Dilletanten (ingenious Dilettantes), the manifesto
of the West Berlin underground music scene. He
has written two books about iceland, Blue Tit
in 1996 and Neues von der Elfenfront, Suhrkamp
verlag 2007, and numerous articles in German
newspapers and magazines. He has also written
and directed eight radio plays for Bavarian Radio
2, and the next one, Séance vocibus Avium, will
feature the reconstructed sounds of 11 extinct birds,
including the Great Auk.
„die Riesen werden
mich für argr halten“
WOLFGAnG müLLER OG SChWuLES muSEum bERLín
7.–31. áGúSt 2008
Myndlistarsýning í Borgarbókasafni reykjavíkur
áður sýnt í schwules Museum Berlín 1995
48