Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2008, Síða 59

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2008, Síða 59
MEGINLAND EVRÓPU AMSTERDAM er einstök í sinni röð. Þar bíða þín vindmyllur, tréskór, túlípanar og kaffihúsin frægu. Listir og matur erta skynfærin og í borginni er fjöldi listasafna og frábærra veitingastaða. BERLÍN er vettvangur frjálslyndis, miðstöð djasstónlistar, lista og skemmtunar. Hún gengur sífellt í endurnýjun lífdaga og er þekkt fyrir söfn og frábæra matargerð. FRANKFURT er lífleg borg. Úrvalið af verslunum, veitingastöðum, söfnum og kaffihúsum er endalaust. Við mælum líka með heimsókn til Wiesbaden og Heidelberg. PARÍS er auðvitað fræg fyrir Eiffelturninn, Sigurbogann og iðandi næturlíf á Champs Elyssées. En París geymir einnig sögu fornra konungdæma, byltinga og valdarána og hægt að finna fyrir þessum liðnu tímum þegar gengið er um götur borgarinnar. BRETLAND GLASGOW er hrein gullnáma fyrir þá sem vilja versla og þar er hægt að snæða á mörgum frábærum veitingastöðum, fara í leikhús eða á næstu krá og fá skoska stemningu beint í æð. LONDON er ótrúlega fjölbreytt borg sem jafnvel bornir og barnfæddir Lundúnabúar ná aldrei að kynnast til fulls. Piccadilly, Soho, lífvarðaskiptin hjá lífvörðum drottningar, svörtu leigubílarnir, rauðu tveggja hæða strætisvagnarnir, Westminster, Covent Garden … við gætum haldið endalaust áfram. MANCHESTER er kraftmikil, músíkölsk og spennandi borg. Verslanir í Manchester eru jafngóðar og í London. Það sama gildir um veitingastaði og næturlífið. Liverpool er svo skammt undan. NORÐURLÖND BERGEN er ein fallegasta borgin í Noregi og býður afþreyingu, skemmtun og ótal tækifæri til útivistar og náttúruskoðunar. Bergen skartar líka fallegum og sérkennandi miðbæ sem er að hluta til varðveittur frá miðöldum. GAUTABORG er tilvalin fyrir helgarferðina. Frábærar verslanir, tónleikar, íþróttaviðburðir og góðir veitingastaðir. HELSINKI er falleg borg og hrein gullnáma fyrir þá sem hafa unun af að skoða frábæra byggingarlist og hönnun af öllu tagi. Auk þess er borgin iðandi af lífi og fjöri og góðum veitingastöðum og skemmtistöðum. KAUPMANNAHÖFN er borg þar sem Íslendingum líður vel. Fyrst skaltu ganga niður Strikið sem iðar af lífi, kaffihúsum, verslunum, veitingastöðum og dæmigerðum dönskum pylsuvögnum. Síðan er tilvalið að ganga meðfram síkjunum, um fallega almenningsgarða eða kíkja í Tívolí. OSLÓ er falleg borg og vinaleg með áhugaverðum söfnum, heillandi útivistarsvæðum, kaffihúsum og veitingastöðum. Tilvalið fara í dagsferð og aka norður á bóginn og þræða bláa firði, aka um skógivaxnar fjallshlíðar og gróskulega dali. STOKKHÓLMUR er í fallegu umhverfi. Eyjar og klettar gera ströndina einstaka. Arkitektúrinn er blanda af gömlu og nýju. Stokkhólmur hefur yfir sér konunglegan blæ. Í Gamla Stan, einu elsta hverfi borgarinnar, er að finna m.a. konungshöllina, þröng stræti og aldagamlan sjarma. BANDARÍKIN BOSTON er „evrópsk í anda“, borg sem fólk fellur fyrir, hreinasta gersemi þar sem bókstaflega allir finna eitthvað við sitt hæfi. MINNEAPOLIS er spennandi áfangastaður. Mall of America, stærsta verslunarmiðstöð Bandaríkjanna, er í Minneapolis og þar eru líka frábærir veitingastaðir, óviðjafnanleg söfn og gott tónlistarlíf. NEW YORK er heillandi suðupottur. Ys og þys á Wall Street eða afslappað andrúmsloft í Greenwich Village. Lífsgleði á Broadway eða notalegur friður á litlu kaffihúsi. New York hefur upp á allt að bjóða. ORLANDO er í hjarta Florida. Það er tilvalið að hefja fríið í Orlando til að slaka á og til að upplifa allt það sem Florida hefur að bjóða. Orlando er líklega þekktust fyrir fjölmarga skemmtigarða, sumir þeirra eru meðal þeirra frægustu í heiminum. KANADA HALIFAX er kjörinn staður fyrir þá sem vilja hafa það gott, skipta um gír og slaka á. Hérna eru fyrst flokks gististaðir, frábærir veitingastaðir, smitandi fjör á kránum í miðbænum, gott mannlíf og litrík menningarhefð. TORONTO, viðskipta- og menningarhöfuðborg Kanada á norðvestur- bakka Ontariovatns, er nýr áfangastaður Icelandair. Borgin iðar af mannlífi og þrótti. Toronto er þekkt fyrir ýmiss konar hátíðir og má nefna t.d. Downtown Jazz Festival, Toronto Bluesfest og kvikmyndahátíðina Toronto International Film Festival, í september. ÆVINTÝRIN BÍÐA ÞÍN Helstu áfangastaðir Icelandair ÆVINTÝRIN BÍÐA ÞÍN HELSTU ÁFANGASTAÐIR ICELANDAIR W W W. I C E L A N DA I R . I S

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.