Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2002, Page 9

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2002, Page 9
Og þeir áttu eftir að verða fleiri. Það eru ekki til neinar vísindalegar sannanir fyrir því hvers vegna sum lög, sumir flytjendur eða ákveðin tegund af tónlist fær hjörtu samkyn- hneigðra til að slá örar. Það hefur áreiðanlega ekki verið ætlun þeirra sem sömdu þessi ákveðnu lög, en það gerðist samt. Allir þessir slagarar eiga það sameiginlegt að þeir slógu í gegn bæði hjá gagnkynhneigðum og samkynhneigðum. Lögin hafa bara lifað lengur hjá samkynhneigðum, bæði á þeirra eigin plötuspilara og á dansgólfinu í klúbbunum. Ekki má gleyma draggdrottningunum sem eru mjög duglegar við að gefa gömlum lögum nýtt líf I sýningum sfnum og halda minningu þeirra á lofti. Sumir listamenn geta alltaf treyst á samkynhneigða aðdáendur sína. Þeir eru mjög trúir sínum gyðjum og goðum ef þeir á annað borð fíla lista- manninn. Ef þú rekst á 12-tommu útgáfuna af laginu „Keep It Togeth- er" með Madonnu í plötusafninu hjá einhverjum, þá getur þú fullvissað þig um að eigandinn sé hommi. Lesbíur fríka út þegar þær heyra „Ég á mig sjálf", textinn er eins og Ijósrit af ævisögu þeirra. Eurovision er helg athöfn hjá hommum sem hafa húmor fyrir hárgreiðslum úr helvíti. Tracy Chapman syngur „Baby Can I Hold You Tonight" og lessurnar éta úr lófa hennar. Kylie Minogue þræddi homma-klúbba og söng „I Should Be So Lucky", löngu áður en restin af heiminum gat ekki náð henni út úr hausnum á sér. Þessi lög eru ómissandi fyrir hvaða Hinsegin hátfð sem er - og fastur liður í lífi margra samkynhneigðra. Þessi diskur er ómetanleg heimild um sögu samkynhneigðra. Hvert einasta lag er yfirlýsing, kjaftshögg, brandari, baráttu- tæki. Sumir listamannanna „fundu upp hjólið" með þessum lögum, og komu af stað flóðbylgju af svipuðum stælingum og pælingum. Þetta eru partílög, danslög og hækjulög. Þessi lög minna mann á þrennt: 1) Gömlu góðu dagana og það að samkynhneigðir eiga sér sína eigin mannkynssögu. 2) Hvað það er gaman að vera til í heimi sem leyfir þér að vera til- finningalega frjáls. 3) Þú ert ekki ein(n) í heiminum - það fíla allir þessi lög. Nú er bara um að gera að styrkja gott málefni og pottþéttan málstað og splæsa í eintak af Pottþétt hinsegin. A new CD, Pottþétt hinsegin (Perfect Pride) will be released in August by Skífan Reykjavík, induding numerous hits, lcelandic and international,

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.