Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2002, Side 15
Kynnir á hátíðartónleikum Hinsegin daga
á Ingólfstorgi 10. ágúst er engin önnur en
hún sjálf- Ungfrú Öskjuhlíð. Eins og þjóðinni
er í fersku minni vafraði hún dösuð niður
hlíðina með titilinn í fanginu að lokinni
fegurðarsamkeppni vorsins, Ungfrú
Öskjuhlíð, en eftir keppnina
hefur hún verið vikulegur
fastagestur á síðum heit-
ustu tímarita landsins -
hvað væri Séð og heyrt
án sjúkrasögu ungfrúarinn-
ar og margir minnast opin-
skásta viðtals ársins í bókinni
Faðir minn húsfreyjan sem út
kom fyrir síðustu jól. Þá er
ungfrúin fastagestur í dálkinum
„Hverjirvoru hvar?". Aðeins
Svavar Örn er oftar nefndur
þar á nafn.
Ungfrú Öskjuhlíð fæddist
aldrei. Móðir hennar
fjarlægði hana úr kviði
sínum löngu áður en að
burði kom. Ungfrúin litla
ólst lika upp við sult og
seyru í fátækrahverf-
um Reykjavikur og
er því hert af volki
og vosbúð -
sumir segja
forhert.
Fullþroska hefur hún verið orðuð við
margan karlmanninn en ávallt vísað
þeim sögum á bug því að hún er nátt-
úrlega jómfrú, trúir ekki á kynlíf fyrir gift-
ingu! Hún er að sjálfsögðu persónuleg
vinkona alls fræga fólksins - á meðan
það er frægt - og hefur iðulega
verið nefnd „uppteknasta
ungfrú Islands", á
stöðugum þeytingi heims-
álfa á milli. Engu að síður
þáði hún boð Hinsegin
daga í Reykjavik um að
kynna skemmtidagskrána á
Ingólfstorgi og það mun hún
gera með harðri hendi og
glöðu geði.
Ungfrú Öskjuhlíð fæddist
aldrei. Hún á sér þess vegna
enga kennitölu. Þið finnið
hana aldrei í Þjóðskránni!
Our beloved Miss
Öskjuhlíð, the most
outstanding example
of lcelandic beauty
and exhibitionism,
will present the
open air concert
on Ingólfstorg
Square,
Saturday 10
August.