Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2002, Síða 22
1940
Samkynhneigð og löggjöf
Alþingi afnemur ákvæði hegningarlaga
þar sem lögð varrefsing við mökum tveggja
einstaklinga af sama kyni án tillits til
aldurs þeírra eða samþykkis. Lagagreinin
„samræði gegn náttúrlegu eðli varðar
betrunarhúsvinnu" var þar með úr sög-
unni. ísland varð annað Norðurlanda til
að afnema refsingar við mökum
samkynhneigðra án tillits til aldurs þeirra
eða samþykkis. Danir afnámu hliðstæð
refsiákvæði 1930, Svíar 1944, Finnar
1971 og Norðmenn 1972. Irland mun
hafa verið síðasta ríki Vestur-Evrópu til að
afnema slík refsiákvæði, 1993.
Homosexuality and the Law
The Althing abolished the provision in
the law which ruled that sexual inter-
course between two individuals of the
same sex, irrespective of age or consent,
was a criminal offence. The clause stipu-
lating that „Unnatural forms of sexual
intercourse are punishable by a term in
prison" now became a thing of the past.
Iceland was only the second Nordic
country to decriminalise same-sex inter-
course, irrespective of age or consent.
Denmark had abolished a comparable
clause in 1930, Sweden was to do so in
1944, Finland in 1971 and Norway in
1972. Ireland became the last country in
Western Europe to abolish a similar
penalty in 1993.
Meðal ótal tónlistarmanna sem koma fram á Ingólfstorgi 10. ágúst eru fjórir piltar
sem ætla sér að verða ódauðlegri en sjálfir Bítlarnir þó á öðrum nótum sé. Með
öðrum orðum: Að skilja eitthvað eftir sig - það er málið. Og þeir völdu rappið enda
kostirnir ótvíræðir: Mikið er hægt að segja á örskömmum tíma og enginn þarf að
komast að því þótt maður kunni ekki að syngja. Og hvað er betra en rappið til að
senda skeyti í allar áttir.
Rottweilerhundarnir eru hann Erpur sem kemur fram sem BlazRoca og Eiríkur sem
kemur fram sem DJ Gummo. Þá er það Lúlli sem alltaf kemur fram sem Lúlli og loks
Ágúst Bent í gervi Bents.
Hlutverk Rottweilerhundanna á sviðinu er að fara í ákveðin hlutverk og minnast þá
í leiðinni á nokkrar vel valdar staðreyndir lífsins sem voru til löngu á undan þeim sjálf-
um. Þeir láta þess getið að mömmum þeirra þyki afskaplega vænt um þá og standi
með þeim í því sem þeir eru að gera. Mamma Eiríks lætur að vísu sem hún heyri
þetta ekki, en mamma Bents er bókstaflega alltaf með þá á fóninum.
Velkomnir á svið Hinsegin daga
í Reykjavík 2002.
Lesið meira um Rottweilerhundana
á www.rottweiler.is
jiunbar