Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2003, Qupperneq 3
Welcome to Gay Pniite 2003 in Reykjavík
Velkomin á Hinsegin daga
The Gay Pride festivities in Reykjavík, organized by five
lcelandic gay organizations and action groups, have
been a marvellous success for four years. A huge, merry
and colourful Gay Parade through the main shopping
street Laugavegur in the city center and a grand out-
door concert attended by close to thirty thousand par-
ticipants last year - lesbians and gay men, friends, rela-
tives, fellow citizens and numerous foreign visitors -
showing solidarity with the gay cause on the second
weekend of August.
HINSEGIN DAGAR
This year's Gay Pride celebrations, on Saturday
August 9th, have been prepared to meet our
wildest expectations, a Gay Parade even more
colourful than previous years and a variety of well
known professional entertainers performing on a
big stage.
REYKJAVIK
GAY PRIDE
Fimmta árið í röð halda samkynhneigðir Hinsegin daga
hátíðlega í Reykjavík. Eftir mikinn og vandaðan
undirbúning fjölmenna allir sem vilja sýna samstöðu
með málstað samkynhneigðra í fjörmikla og skrautlega
gleðigöngu niður Laugaveg og á glæsilega útitónleika í
Lækjargötu laugardaginn 9. ágúst.
Á þessari miklu hátíð minnum við sjálf okkur og aðra á
mikilvægi þess að efla sýnileika okkar og stoltar til-
finningar. Með hátíðahöldunum minnum við
bæði sjálf okkur og aðra þegna þessa lands á
það að lesbíur og hommar á íslandi eiga sér
menningu og sögu, þau eiga fjölskyldur og vini
sem vilja deila gleði og stolti með þeim sem náð
hafa lengra en samkynhneigt fólk flestra annarra
ríkja í mannréttindabaráttu sinni.
The gay rights campaign in lceland has a history of
twenty five years. A chronicle of a hard fight and victo-
ry almost unique in the world. From being an invisible
group of an oppressed minority, the lesbians and gay
men in lceland have now gained social and legal rights
comparable to the best of its kind in the world. This is
clearly reflected in our festivities - a true manifestation
of our pride and ambitions.
We are pleased to welcome you to our festivities, Gay
Pride 2003 - Different Days in Reykjavík. We emphazise
that gay solidarity can only be realized universally.
Thank you for joining us - thank you for adding your
own special touch of colour to the rainbow which will
be shining over Reykjavík on a joyful weekend.
Hinsegin dagar í Reykjavík eru orðinn hefð-
bundinn þáttur í borgarlífinu. Samt er hátíðin ný í hvert
sinn. í ár munu allir þeir slást í hópinn sem voru fjarri
góðu gamni í fyrra. Vonandi taka þeir með sér systkini
sín og foreldra, afa og ömmur, ættingja og vini. Leit
okkar að frelsi, stolti og mannvirðingu er nefnilega
ekkert einkamál samkynhneigðra, hún er mál allrar
þjóðarinnar og alls þess heims sem lætur sig mannlega
hamingju varða. Á hátíðinni í ágúst sameinast allir undir
regnbogafánanum sem táknar litrófið í margbreytilegri
menningu samkynhneigðra. Þótt litirnir séu margir
mynda þeir saman einn skínandi regnboga.
Samstarfsnefnd um
Hinsegin daga í Reykjavik 2003