Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2003, Page 47
HEILBRIGÐIS- OG TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
STYRKIR ÞESSA BIRTINGU
Alnæmi en veruleihi
HlV-veiran, sem veldur alnæmi, fer ekki
í manngreinarálit, hún berst milli fólks á
öllum aldri, milli gagnkynhneigðra,
samkynhneigðra, tvikynhneigðra, og
enginn er óhultur fyrir henni nema hann
stundi öruggt kynlíf. HlV-jákvæða er
ekki hægt að þekkja á útlitinu.
HlV-veiran ræðst á ónæmiskerfi líkam-
ans svo að eðlilegar varnir hans hrynja.
Engin varanleg lækning er ennþá til við
alnæmi en á síðustu árum hafa komið
fram lyf sem gera veiruna óskaðlega
ónæmiskerfinu og auka lífslíkur manna til
muna. Slík lyfjagjöf reynist þó flestum
erfið.
Þú átt ekki að sjá ástæðu til að spyrja
þá sem þú hefur mök við hvort þeir séu
HlV-jákvæðir því að svörin veita enga
tryggingu gegn smiti. Ábyrgt kynlíf felst
í því að haga sér eins og allir kunni að
vera HlV-jákvæðir og nota smokkinn
undantekningarlaust.
Settu þér einfaldar og öruggar reglur í
kynlífi sem þú víkur aldrei frá. Mundu
að notkun áfengis og vímuefna veikir
dómgreindina og býður hættunni heim.
er sftemmUlegup leiftun