Vinnan - 01.03.1943, Síða 9
Fundur í Sambandsstjórninni. — Frá vinstri: Ágúst H. Pétursson, varam., Þorsteinn Pétursson, varam., Björn Bjarnason, ritari,
Stefán Ögmundsson, vara-forseti, Jón Sigurðsson, framkv.stjóri, Guðgeir Jónsson, forseti, Eggert Þorbjarnarson, varam., Sæmund-
ur Ólafsson, gjaldkeri, Hermann Guðmundsson, Þorvaldur Brynjólfsson. — Fjarstaddir voru:
Sigurður Guðnason.
Jón Rafnsson.
Þórarinn Guðmundsson.
múganum skilyrðum til eðlilegs þroska, eSa forheimska
hann meS öfugsnúnum áróSri og kákmenntun, þá er
slík starfsemi mál, sem AlþýSusambandiS hlýtur aS
láta sig miklu varSa.
En hver eru þau ráS, sem aS gagni mega koma til
þess aS bæta fyrir þaS misrétti, sem alþýSan hefir orSiS
aS þola í þessum efnum.
AlþýSusambandinu ber aS taka til yfirvegunar öll
þau menningarlegu skilyrSi, sem alþýSan á viS aS búa,
og hafa samstarf viS fulltrúa hennar á Alþingi um
gagngera endurskoSun á fræSslukerfi þjóSarinnar. ÞaS
eru litlar líkur til aS slíkar breytingar fáist átakalaust,
sem fela í sér aukna menntun alþýðunnar, t. d. lengingu
skólaskyldualdurs til 18 ára, stofnun nýrra skóla, opn-
un menntastofnananna, stórkostleg fjárframlög til al-
þýðubókasafna, æskulýðshúsa, verkamannaklúbba, svo
að nokkur atriði séu nefnd.
Hinsvegar ber Alþýðusambandinu að hefja sjálfstætt
starf að sköpun skilyrða fyrir öflugri fræðslu- og menn-
ingarstarfsemi, annaðhvort á eigin spýtur eða í sam-
starfi við önnur samtök, er stefna að sama marki.
Það má benda á nokkur atriði þessu viðvíkjandi, þótt
VI N N A N
7