Vinnan


Vinnan - 01.02.1947, Blaðsíða 9

Vinnan - 01.02.1947, Blaðsíða 9
1.—2. tölublað Jan.—febr. 1947 5. árgangur Reykjavík Ritnefnd: Björn Bjarnason Helgi Guðlaugsson ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUSAMBAND ÍSLANDS GUÐJÓN BENEDIKTSSON: Fánasöngur múrara /--------------------------------------------------\ EFNISYFIRLIT: Þorsteinn Jósepsson: Gufuvirkjun i Hveragerði, kdpumynd Guðjón Benediktsson: Fánasöngur múrara, kvœði Heiðrekur Guðmundsson: Vestmenn, kvæði Af alþjóðavettvangi Hermann Guðmundsson: Aramót, forystugrein Alfred Skar: Launa- og verðlagsstefna i Noregi N. Rilykow: Verkalýðsmálalöggjöf Sovétrikjanna og framkvœmd hennar Henrik Bernhard Palmer: Upprisudagur Reka- vikurbúa, smásaga Gisli H. Erlendsson: Sorg, kvœði Guðjón -Benediktsson: Múrarafélag Reykjavikur 30 ára Skdldin og sjálfstœðisbaráttan, fyrsta-mai-dagskrá Juri Semjonoff: Salt jarðar Erskine Caldwell: Bíllinn, sem ekki varð ekið Morgunn i Berserkjahrauni, kvœði eftir jr. Sambandstiðmdi, kaupskýrslur o. fl. Vs-------------------------------------------------y Vér heilsum þér fáni, og hjarta vort slær nú hraðar og léttar í barmi. Og fylkingin þéttist og þokar sér nær, og þrótturinn stælist í armi, er faldur þinn blaktir við frelsandi vor af félagshönd drengskapar borinn; því æskunni vekurðu áræði og þor og ellinni léttirðu sporin. Vér förum þar allir, sem fáni vor sést — hans faldur er hreinn eins og vorið — og sækjum þar þéttast, sem þörfin er mest, til þess hefur lífið oss borið. Og einhuga fylking með framsækna önd mun frelsinu aldregi glata. Ef stefnunni ræður hin starfandi hönd, er stéttvísin örugg að rata. HEIÐREKUR GUÐMUNDSSON: VESTMENN Vestur í heimi á hernaðarleið er höfðingjavaldið að rísa, sem reynt var í hömlum að halda um skeið, og hefur oft valdið þar sárari neyð en unt er með orðum að lýsa. Og verkföllin brýtur hinn voldugi her svo vinnulaun hækka þar eigi. Og sóttur að lögum er leiðtogi hver, sem lýðfrelsið styður og einbeitir sér til sóknar á sannleikans vegi. En heima á Fróni er fallið á kné og fagnað í hljóði þeim teiknum. Þar finnst jafnvel sumum að fórnandi sé flugvallarsneið — ef þeir láta í té samhjálp í síðasta leiknum. VINNAN I

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.