Vinnan


Vinnan - 01.02.1947, Blaðsíða 11

Vinnan - 01.02.1947, Blaðsíða 11
HERMANN GU Ð MU N D S S O N : ARAMOT Ársins 1946 mun ávallt verða rninnst sem eins merkasta árs í sögu verkalýðshreyfingarinnar á íslandi. Auk margra merkisviðburða, er skeðu á árinu og snerta alþýðu þessa lands, er það einkum tvennt sem hæst gnæfir og gefur árinu sitt sér- staka gildi. Það er þrjátíu ára afmæli heildarsam- takanna og 19. þing Alþýðusambands íslands. Þrjátíu ár er eigi langur tími, nánast mjög skammur tími í lífi þjóðarinnar og má segja að verkalýðssamtökin hafi tæplega slitið barnsskón- um. Þó er það svo, að á þessu tímabili hafa orðið straumhvörf meðal vinnandi stétta og frá þeim fyrst og fremst myndast straumar, sem lyft hafa þjóðinni á hærra menningarstig. Baráttan fyrir bættum kjörum alþýðunnar hef- ur borið glæsilegan árangur og það svo, að alls staðar blasir við hin stórfelda breyting til bóta sem orðið hefur á þessum þrjátíu árum á lífskjör- um verkalýðsins — árangur sem fyrst og fremst má þakka stéttarsamtökunum. En þótt ntikið hafi áunnizt, er margt ógert. Framundan bíða óteljandi verkefni, sem hrinda þarf í framkvæmd. íslenzk verkalýðshreyfing með heildarsamtök sín, Alþýðusamband íslands, í broddi fylkingar, mun eigi liggja nú né framvegis á liði sínu í þeim orustum sem framundan eru í baráttunni fyrir auknum rétti og bættum kjörum. -K Um hið 19. þing Alþýðusambandsins hefur verið svo margt sagt og ritað, að eigi er þörf að skrifa um það langt mál hér, aðeins skal undir- strikað, að jafnhliða því sem þetta var fjölmenn- asta þing, sem heildarsamtökin hafa haldið, var þingið að undirbúningi og störfum öllum eitt hið giæsilegasta þinghald íslenzka verkalýðsins til þessa. Á tímabilinu milli 18. og 19. þingsins voru gerðir fjölda margir samningar milli verkalýðs- félaga og atvinnurekenda og hafði Alþýðusam- bandið hönd í bagga með vel flestum þeirra. Samningar þessir eru æði misjafnir, eins og vænta mátti, svo ólík sem viðhorf og aðstæð- ur verkalýðsfélaganna eru oft og tíðum. Þó hefur verið reynt eftir því sem tök voru á, að samræma þá. - Auk hinna beinu kaupgjaldsmála létu verka- lýðssamtökin sig miklu skipta ýmis önnur hags- munamál, svo sem atvinnumál o. fl. Tóku verkalýðsfélögin víða virkan þátt í ný- sköpun þeirri, sem fyrrverandi ríkisstjórn hafði á prjónunum. Þá létu verkalýðssamtökin sig miklu skipta sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar og hóf virkar aðgerðir í því sambandi og má þar nefna allsherjarverkfallið í Reykjavík, sem háð var í mótmælaskyni við samning þann, sem gerður var við Bandaríki Norður-Ameríku um herstöðvar á íslandi. -K Árið sem nú er liðið var í mörgu hagstætt verkalýð þessa lands. Atvinna var víðast hvar nægileg, en þó ekki alls staðar, kauphækkanir urðu víða og mörg verkalýðsfélög bættu verulega hag meðila sinna. Samt sem áður hefur margt gerzt á árinu, sem bregður skugga á, má þar nefna hinn geigvæn- lega vöxt dýrtíðarinnar og nú í lok ársins, stjórn- arkreppu og alla þá óvissu og glundroða, sem henni fylgja í atvinnulífi jijóðarinnar. -K Við árið, sem nú er að hefja göngu sína, eru eins og alltaf áður, þegar nýtt ár gengur í garð, tengdar vonir og áhyggjur. Yfirleitt mun þó ekki gæta mikillar bjartsýni með þjóðinni, eins og oft áður við undanfarin áramót góðærisins á íslandi. Ber margt til þess að svo er. Svik afturhaldsaflanna við nýsköpun- ina og heitrof í sjálfstæðismálinu eins og flug- vallarsamningurinn sannar bezt. Viljaleysi vald- liafanna til að ráða niðurlögum dvrtíðarinnar og VIN N A N 3

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.