Vinnan


Vinnan - 01.02.1947, Blaðsíða 37

Vinnan - 01.02.1947, Blaðsíða 37
 SAMBANDS- tíðindi j Vísitalan 1946 Hér fer á eftir kaupgjaldsvísitala síðastliðins árs og er þá miðað við vísitölu næsta mánaðár á undan: Janúar ................................... 285 stig Febrúar .................................. 285 — Marz ..................................... 285 — Apríl .................................... 285 - Maí ...................................... 285 - Júní ..................................... 287 — Júlí .................................... 292 - Ágúst .................................... 293 — September ................................ 296 — • Október ..................................... 294 - Nóvember ................................. 302 — Desember ................................. 303 — Meðalkaupgjaldsvísitala ársins er 291 stig, en meðalvísitala Hagstofunnar er 293 stig. Munurinn liggur í því, að Hag- stofan miðar útreikning sinn við útreiknaða vísitölu í hverj- um mánuði ársins. Þingtíðindin Þingtíðirídi 19. þings Alþýðusambandsins eru nú í prentun og fylgir þeirn skýrsla sambandsstjórnar, sem lögð var fyrir þingið. Þirígtíðindin munu á næstunni verða send öllum sam- bandsfélögum eins og venja er til. Skýrslur sambandsfélaganna Skrifstofa sambandsins hefur nú sent öllum sambandsfélög- unum hin venjulegu skýrslueyðublöð, sem útfylla ber um hver áramót. Fr þess vænzt, að félögin dragi ekki að senda skýrslur þessar til skrifstofunnar liið allra fyrsta. Sjómannasamningur á Akranesi Þann 2. jan. s.l. voru undirritaðir kaup- og kjarasamningar sjómanna á Akranesi, milli Verkalýðsfélags Akraness og út- gerðarmanna. Helztu breytingar frá fyrri samningi eru þær, að kaup- trygging sjómanna hefur hækkað úr kr. 100.00 á viku (grunn- kaup) í kr. 135.00, en það jafngildir kr. 2.80 um klst. miðað við átta stunda vinnudag, eða miunst kr. 560.00 á mánuði. Þau nýmæli fengust einnig í samninginn, að útgerðarmenn kaupa nú fiskinn hausaðan og slægðan af sjómönnum, án til- lits til í hvaða ástandi þeir selja hann eða hvernig þeir verka hann. Þá er í samningnum ákvæði, sem tryggir aðkomusjómönn- um frítt ljós og hita í verbúðunum. Aðalfundur Vélstjórafélags Vestmannaeyja Vélstjórafélag Vestmannaeyja hélt aðalfund þann 3. jan. s.l. I stjórn voru kosnir: Tryggvi Gunnarsson, formaður (endur- kosinn), Páll Scheving, varaformaður (endurkosinn), Björn Kristjánsson, ritari (endurkosinn), Alfreð Þorgrímsson, gjald- keri, og Friðþór Guðlaugsson, fjármálaritari. Félagsmál Svo nefnist nýtt mánaðarrit, sein Verkamannafélag Akur- eyrarkaupstaðar hóf útgáfu á í des. s.l. Fyrsta heftið er 16 síð- ur að stærð. Ritið flytur ýmsar greinar um félagsntál verka- manna á Akureyri, kvæði o. fl. Nýr kjarasamningur í Vatnsleysustrandarhreppi Um áramótin gekk í gildi nýr kjarasamningur milli Verka- lýðsfélags Vatnsleysustrandar og atvinnurekenda. Samkvæmt þessum samningi hækkaði grunnkaup verkamanna í almennri dagvinnu úr kr. 2.40 í kr. 2.65 á klst. Skipavinnukaup er kr 2.90. Þá var samið um kaup kvenna í fyrsta skipti og er það kr. 1.77 og fellur vinna drengja 14—16 ára undir sama taxta. Einnig var samið um ákvæðisvinnutaxta við fiskþvott. Samn- ingurinn gildir til hálfs árs. Skipun Iðnsveinaráðs í samræmi við lagabreytingu, sem samþykkt var á 19. þing- inu, hafa fulltrúar iðnsveinafélaganna, er sæti áttu á þing- inu kosið 5 menn í Iðnsveinaráð Alþýðusambands íslands og 3 til vara. Sem aðalfulltrúar hlutu kosningu þeir Stefán Ög- mundsson, Guðgeir Jónsson, Snorri Jónsson, Guðbrandur Guð- jónsson og Óskar Hallgrfmsson. Varamenn voru kosnir: Valdi- mar Leonhardsson, Sigurður Þórðarson og Böðvar Steinþórs- son. Ráðið hefur kosið Stefán Ögmundsson formann og Guð- geir Jónsson ritara. Aðalfundur Jötuns í Vestmannaeyjum Sjómannafélagið Jötunn í Vestmannaeyjum hélt aðalfund sinn fyrir árið 1947 þann 30. dcs. s.l. Stjórn félagsins skipa nú: Formaður: Sigurður Stefánsson (endurkjörinn), varaformaður: Hermann Jónsson (endurkjörinn), ritari: Gísli Sveinsson, gjald- keri: Þórður Sveinsson, varagjaldkerj■ Sigurjón Auðunsson. Nýr samningur Sjómannafélags Reykjavíkur og Sjómannafélags Hafnarfjarðar Þann 6. jan. s.l. voru undirritaðir samningar milli Sjó- mannafélags Reykjavíkur og Sjómannafélags Hafnarfjarðar annars vegar og Landsambands útvegsmanna hins vegar um kaup og kjör sjómanna á landróðrarbátum og útilegubátum. Helztu breytingarnar frá fyrri samningi eru þessar: Lágmarkstrygging liækkar úr kr. 250.00 á mánuði, rniðað við þrjátíu daga mánuð, í kr. 135.00 á viku. A bátum með 12 manna áhöfn skal skipt í 23 staði í stað 24 áður. Aukaþóknun 2. vélstjóra umfram hlut hækkar úr kr. 50.00 í kr. 100.00 á mánuði. Kostnaðarhluti bátsverja í leigu verbúða, skal reiknaður yfir þann tíma, sem vertíðin stendur, samkvæmt mati húsaleigu- nefndar. Áður var verbúðaleiga fyrir allt árið oft reiknuð með í kostnaði við bátinn. Nýr samningur á Bíldudal Þann 7. jan. s.l. var undirritaður samningur urn kaup og kjör milli Verkalýðsfélagsins Varnar á Bíldudal og atvinnu- rekenda. Samkvæmt þessum samningi hækkar kaup verka- manna x almennri vinnu úr kr. 2.20 í kr. 2.40 á klst. Tíma- kaup verkakvenna og unglinga hækkar úr kr. 1.54 í kr. 1.75. Kaup í ákvæðisvinnu við fiskþvott hækkar um 14%. Mánaðar- kaup kaila hækkar úr kr. 440.00 í kr. 480.00 og kvenna úr kr. 308.00 í kr. 350.00. Skipavinnukaup er óbreytt. VINNAN 29

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.