Vinnan - 01.02.1947, Blaðsíða 28
Efri myndin til hægri: Grundarfjörður á norðan-
verðu Snæfellsnesi, séð frá Grafarnesi. Fram-
undan er fjallið Grundarmön. Lengst til hægri
sést inn í Grundarbotn, Grundarrana og Fossa-
hlíð undir lágu klettabelti vestan botnsins.
Neðri myndin til hægri: Óneitanlega er „sá
guli“, þorskurinn, „fagur fiskur í sjó“ og ekki
síður nytsamlegur. Fyrr á tíð voru þorskhaus-
arnir, nýir, saltir og hertir, ein af aðalfæðuteg-
undum landsmanna. Og í hinni ágætu ritgerð
sinni „þorskhausarnir og þjóðin“ hefur dr. Guð-
mundur heitinn Finnbogason lýst þýðingu þorsk-
haussins í íslenzku þjóðlífi. Nú má þorskhaus-
inn muna fífil sinn fegri. því að sé honum ekki
fleygt, er hann notaður sem áburður á tún.
Efri myndin til vinstri: Fyrr á tíð voru meisar
algeng heyílát, þótt nú séu þeir orðnir sjaldséð-
ir. Á myndinni sést fjármaðurinn á Barkarstöð-
um í Fljótshlíð vera að bera hey í meis til fjár-
hússins. í baksýn sést Eyjafjallajökull.
Neðri myndin til vinstri: „Gamall þulur hjá
Græði sat“. Þessi mynd er frá Vestmannaeyjum.
Gamli maðurinn situr við sjóinn og horfir á
Heimaklett.
20
V I N N A N