Vinnan


Vinnan - 01.02.1947, Blaðsíða 39

Vinnan - 01.02.1947, Blaðsíða 39
r "s ORÐSENDING til allra kaupenda og útsölumanna Frá því vinnan hóf göngu sína í marz 1943 hefur áskriftarverð verið hið sarna fram að þessu, kr. 24.00 árgangurinn. Þó hefur allur útgáfukostnaður hækk- að mjög mikið á þeim tíma, sem síðan er liðinn. Nti hefur reynzt óhjákvæmi- legt að hækka verðið lítilsháttar, og liefur því verið ákveðið, að frá ársbyrj- un 1947 skuli áskriftaverð vera kr. 30.00 á ári. Er þess vænst, að kaupend- ur skilji nauðsyn þessarar hækkunar, ekki sízt með tilliti til þess, hve verðið hefur verið lágt, miðað við stærð rits- ins. v___________________________________________ Höfuðbreytingarnar frá fyrri samningi eru þær, að í stað áhættuþóknunar, sem áður var og óákveðins vinnutima, er nú komin 8 stunda vakt og hækkun á mánaðargrunnkaupi. Mán- aðargrunnkaup fullgildra háseta er nú kr. 500,00, léttháseta kr. 450,00 og viðvaninga kr. 400,00. Skipverjar hafa auk þess fritt fæði. Kaup yfirmatsveins er kr. 775,00 á mánuði, en þjónustu- fólks kr. 350,00. Yfirvinna greiðist með kr. 2,00 fyrir hverja byrjaða klukku- stund. Missi skipverjar fatnað sinn í strandi eða af öðrunr óvið- ráðanlegum ástæðum greiðir útgerðin hverjum þeirra kr. 20Öft,00 í skaðabætur auk dýrtíðaruppbótar. Samningurinn gildir frá 1. jan. 1947 og er uppsegjanlegur tvisvar á ári: 30. júní og 31. des. með eins mánaðar upp- sagnarfresti. Vaktaskipti í hraSírystihúsum? Á fyrsta fundi núverandi sambandsstjórnar, 16. nóv. 1946, var m. a. kjörin nefnd af hálfu sambandsins til að ræða við aðra nefnd frá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna unt möguleika á víðtækum samningi um vaktaskipti í hraðfrystihúsum. í nefnd Alþýðusambandsins eiga sæti: Hermann Guðmundsson, Björn Bjarnason og Jón Rafnsson. Nefndirnar hafa rnætt á einum fundi og er málið enn í undirbúningi. Nýr kjarasamningur á Hoísósi Verkamannafél. Farsæll á Hofsósi og Kaupfélag Austur- Skagfirðinga undirrituðu samning um kaup og kjör verka- manna 21. jan s.l. Samkvæmt honum er nú grunnkaup þar í almennri dagvinnu kr. 2,55 (áðtir kr. 2,20). — Eftirvinna er greidd með 50% álagi á dagvinnu, en nætur- og helgidaga- vinna með 100% álagi. — Vinni verkamenn fagvinnu skulu þeir fá 7% álag á almennt verkamannakaup. Þegar samningar náðust, hafði vinnustöðvun staðið í þrjá daga. ASalíundur Hreyíils Bifreiðastjórafélagið Hreyfill hélt aðalfund sinn 21. jan. s.l. I stjórn félagsins voru kosnir: Ingimundur Gestson for- maður, Halldór Björnsson varaformaður, Jón Jóhannsson ritari, Magnús Einarsson gjaldkeri, Sveinbjörn Einarsson, Ingi- bergur Sveinsson og Sigurður Guðmundsson meðstjórnendur. Eignir félagsins nema nú rúml. 40 þús. króna í sjóðum og öðrum eignum. Nýr kjarasamningur Sóknar Þann 16. jan. s.l. var undirritaður nýr kjarasamningur milli Starfsstúlknafélagsins Sóknar og Ríkisspítalanna og Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar. Samkvæmt þessum samningi er grunnkaup starfsstúlknanna kr. 310,00 á mán. fyrstu 9 mánuðina, kr. 325,00 á mánuði næstu 9 mánuðina og kr. 350,00 á mánuði þar eftir. Eftirvinna greiðist með 50% álagi og nætur- og helgidagavinna með 100% álagi á dag- vinnukaup. 40 ára afmæli Hlífar Verkamannafélagið Hlíf í Hafnarfirði minntist 40 ára af- mælis síns með skemmtunum í tveirn samkomuhúsúm í Hafn- arfirði 25. jan. s.l. I tilefni afmælisins gaf félagið út myndar- legt afmælisrit þar sem saga félagsins er ítarlega rakin af Gils Guðmundssyni ritstjóra. Vinnan mun minnast þessara tíma móta í sögu Hlífar í næsta hefti. Nýr sjómannasamningur í Olafsvík Þann 7. jan. s.l. var undirritaður nýr samningur um kaup og kjör sjómanna á línuveiðum milli Verkalýðsfélagsins Jök- uls í Olafsvík og Útvegsmannafélags Olafsvíkur. Samkvæmt þessum samningi tryggja útgerðarmenn hásetum kr. 117,00 á viku og vélstjórum hlutfallslega hærra miðað við hlutfallið rnilli hlutar þeirra og háseta. Full dýrtíðaruppbót kemur mánaðarlega á grunntryggingu þessa. Samningur þessi gildir til 31. des. n.k. og er uppsagnarfrestur einn mánuður. Viðræður um stjórnarmyndun 'I'veir þingmenn ræddust við í fundarhléi. Annar var læknir. 1. þingmaður: Verður þú ekki kvaddur til, þegar Stefanía Thors fæðist? 2- þingmaður: Ekki er ég viss um það, ég kynni þá betur við að Katrín yrði líka viðstödd. Annars held ég að bezt væri að kalla til Sigurð dýralækni. Hann er vanur að segja, ef fæðingin gengur illa: Ef þetta lagast ekki í nótt, er bezt að skjóta skepnuna í fyrra- málið. Aðalfundur Bjarma á Stokkseyri Verkalýðs- og sjómannafélagið Bjarmi á Stokkseyri hélt aðalfund sinn 12. jan. s.l. I stjórn voru kosnir: Björgvin Sig- urðsson formaður, Helgi Sigurðsson varaformaður, Frímann Sigurðsson ritari, Gísli Gíslason gjaldkeri og Guðmundur Ingjaldsson meðstjórnandi. Samþykkt var að hækka árgjöld karla úr kr. 56,00 í kr. 64,00 og kvenna úr kr. 30,00 í kr. 36,00. VINN AN 31

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.