Vinnan


Vinnan - 01.02.1947, Blaðsíða 12

Vinnan - 01.02.1947, Blaðsíða 12
ALFRED SKAR: Launa- og verðlagsstefna i Noregi Höfundur eftirfarandi greinar, Alfred Skar, er ritstjóri tímaritsins Fri jagbevegelse, sem gefið er út af norska Verkalýðssambandinu. Hann var fulltrúi norsku verkalýðshreyfingarinn- ar á 19. þingi Alþýðusambands íslands s.l. haust og ritaði þá þessa grein fyrir Vinnuna áður en hann fór heim. Hann lýsir hér baráttu norsku ríkisstjórnarinnar og norsku verkalýðssam- takanna fyrir því að halda dýrtíðinni í skefjum og að endurreisa atvinnulíf landsins eftir hið grimmdarfulla og tortímandi hernám nazista og þeirri baráttu, sem verkalýðshreyfingin heyr jafnframt fyrir því að hækka lífskjör verkalýðsins á skömmum tíma til jafns við það, sem þau voru fyrir hernámið. Þótt aðstaðan sé af eðlilegum ástæðum í mörgu frábrugðin því, sem er í -Noregi í þessum efnum, geta Islendingar og þá einkum verkalýðshreyfingin vafalaust lært þar ýmislegt af Norðmönnum.Einkum eru athyglisverð hin miklu afskipti, semverkalýðssamtökin norskuhafa fengið aðstöðu til að hafa af verðlaginu á innfluttum vörum og innlendri framleiðslu. A Jr\ í sviði er um að ræða eitt mesta vandamálið í sambandi við dýrtíðina á íslandi. I skjóli smá- vegis hækkunar á innfluttum vörum vegna stríðsins, hefur óhófleg álagning og alls konar gróðabrall verð lálið viðgangast frá því í stríðsbyrjun, þrátt fyrir Jrað verðlagseftirlit, sem hér var sett á laggirnar 1939. Enda er það staðreynd, að íslenzkur verkalýður hefur engin ítök haft í verðlagningu og verðlagseftirliti á þessu tímabili. I'arna er að finna frumorsök þeirrar miklu verðbólgti, sem orðið hefur hér á landi, en ekki — eins og sumir andstæðingar verka- lýðssamtakanna reyna að halda fram — í þeirri kaupgjaldsbaráttu, sent verkalýðurnn hóf, eftir að drjúgur skriður var kominn á dýrtíðarölduna og sjóðir hinnar ört vaxandi heildsalastéttar og annarra stórgróðamanna voru teknir að gildna óhóflega. Þarna er að finna meginorsök og undirstöðu dýrtíðarinnar hér á landi, og þar verður því að byrja, þegar hafizt verður handa með skipulögðum ráðstöfunum að þoka henni niður. Þrátt fyrir meira og minna ólík sjónarmið ern allir stjórnmálaflokkar Noregs og ábyrgir aðilar í atvinnulífinu sammála í aðalatriðum um að fylgja beri verðfestingarstefnunni. Þetta kom ó- tvírætt í ljós í einróma áliti atvinnumálaráðsins 2. okt. síðastliðinn. Þó að menn séu sammála um þetta í grund- vallaratriðum, fer því fjarri, að verðfestingar- stefnunni sé engin hætta búin. Það er vafalaust rétt hjá forsætisráðherranum, Einari Gerhardsen, þegar hann kemst svo að orði, að þjóðin vegi salt á hnífsegg. Og verkalýðssamtökin líta á það sem lífsnauðsyn að vér sveiflumst ekki niður í djúpið. Vonir manna í byrjun ársins 1946 um tiltölu- lega öra lækkun hins alþjóðlega verðlagsstigs hafa brugðizt. I stað þess hefur verðlag hækkað, meðal annars í Bandaríkjunum, og gengi hins sænska og kanadiska gjaldeyris verið hækkað. Það er aug- ljóst mál, að þetta hefur orkað mjög á verðlags- stigið í Noregi. Ennfremur hefur í sumar og í haust, tvisvar verið hækkað verð á nokkrum teg- undum landbúnaðarvara, ráðstöfun, sem ekki varð hjá komizt. Sú endurskoðun launamála, sem framkvæmd he'fur verið í Noregi á þessu ári, nær til um 300,- 000 verkamanna og skrifstofumanna. Auk hinn- leysa þau vandamál, sem nú ber að garði er svo áberandi, að það fær eigi lengur dulizt almenn- ingi. Vaxandi öryggisleysi og ráðaleysi á öllum sviðum í þjóðfélaginu, veldur og mörgum áhyggj- um og þá ekki sízt verkalýðnum, sem öðrum fremur þráir. að örugg afkoma landsmanna sé tryggð. Hvort hið nýja ár ber í skauti sínu breytingu til batnaðar á þessum þjóðfélagsvandamálum, skal engu um spáð hér, en öruggt má teljast, ef þau öfl, sem standa að því ófremdarástandi, sem er að skapast í landinu, fá að framkvæma frekari skemmdarstörf en þau hafa nú þegar gert, er voð- inn vís. Samtök verkalýðsins gera sér þetta ljóst og munu nú eins og fyrr mæta því sem að hönd- um ber í órofa heild stéttarlegrar einingar, sem árásir afturhaldsins munu brotna á. 4 VINNAN

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.