Vinnan


Vinnan - 01.02.1947, Blaðsíða 23

Vinnan - 01.02.1947, Blaðsíða 23
Einar Sveinsson, Flippus Guðmundsson og Jón E. Gíslason, sem var framsögumaður nefndarinn- ar á næsta fundi. Nefndin lagði til, að sjóðurinn skyldi stofnaður með fyrrgreindu stofnfé. Tekjur sjóðsins skyldu vera helmingur árlegra félags- gjalda svo og eigin vextir. Sjóðurinn skyldi standa óbreyttur í eitt ár. Næstu 5 ár skyldi helmingur tekna sjóðsins lagður við höfuðstól, en hinum helmingnum varið til styrkveitinga, en um þær segir svo í nefndarálitinu: „Hver skuldlaus féiagi M. F. R., sem er frá vinnu sökum veikinda í einn mánuð minnst, skal fá heimsendar kr. 100,00. Sámþykkt var að stofna sjóðinn á þeim grund- velli, sem lagt var til í nefndarálitinu. Nefnd var kosin til þess að semja skipulagsskrá fyrir sjóðinn og í hana kosinr þeir Guðni Egilsson, Kjartan Ólafsson og Einar Finnsson. A aðalfundi 3. marz 1924 var skipulagsskráin endanlega samþykkt. Auk þess fjárframlags, sem fyrr getur, var og sam- þykkt að gefa sjóðnum „vonina“ í vangreiddum iðgjöldum, að upphæð kr. 716,00. Sjóðurinn vex svo jafnt en hægt. Árið 1933 er hann orðinn kr. 12.767,00 og þá hafði verið greitt í styrki alls kr. 2373,00. En árið 1933, þann 4. febrúar, ber Guðbrandur Guðjónsson fram tillögu um stofnun Atvinnu- leysisstyrktarsjóðs innan félagsins með auknum fjárframlögum. Tillagan fær góðan byr í félaginu og er kosin nefnd til undirbúnings málinu. í nefndina eru kosnir þeir Guðbrandur Guðjóns- son, Ólafur Pálsson, Guðjón Benediktsson, Maris Guðmundsson og Jóhannes Bergsteinsson. Nefndin lagði einróma til að sjóðurinn skyldi stofnaður og sameinaður Styrktarsjóð félagsins. Hún hafði og samið frumvarp til reglugerðar fyr- ir sjóðinn, sem samþykkt var á fundi þann 9. maí 1934. Iðgjaldið til sjóðsins skyldi vera 21/9% af útborguðum vinnulaunum félagsmanna, en %% skyldi renna í félagssjóð. Eftir þetta tekur sjóðurinn margföldum vexti við það sem áður liafði verið . Árið 1941 er reglugerð sjóðsins breytt og hann gerður að sjúkrastyrktarsjóði. Samkvæmt þeirri reglugerð hans hafa allir rétt til styrks sem sjúkir eða óvinnufærir hafa verið í eina viku. Fá þeir vikulegan styrk að npphæð kr. 50,00 í 8 vikur ár hvert, er bætist samkvæmt vísitölu hagstofunnar á hverjum tíma. Við árslok 1946 nema eignir sjúkrastyrktar- sjóðsins kr. 144.128,26. Á því ári eru veittir sjúkrastyrkir að upphæð kr. 12.994,18. 3. Jarðarfara- og ellistyrktarsjóður. Sjóður þess er stofnaður á aðalfundi árið 1939 og skyldu tekj- ur hans vera i/£% af útborguðum launum félags- manna. Tilgangur sjóðsins er að styrkja meðlimi fé- lagsins þegar atvinnumöguleikar þeirra skerðast fyrir elli sakir, eða eftir 65 ára aldur. Einnig skal greiða úr sjóði þessum við útför félagsmanna kr. 700,00 — auk dýrtíðaruppbótar — til nánustu venslamanna. Á síðasta aðalfundi félagsins voru eignir sjóðs- ins alls kr. 25.637,40. Á því ári höfðu verið greiddir styrkir alls kr. 6334,00. 4. Sumarsjukrasjóður. Þegar tekin var upp sú regla í félaginu, að greiða félagsgjöldin í hundr- aðshlutum af útborguðum vinnulaunum til aukn- ingar atvinnuleysissjóðnum, vaknaði sú hreyfing Magnús Árnason Kjartan Ólafsson Jón E. Gislason form. 1943—1946 heiðursfélagi heiðursfélagi VIN N A N 15

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.