Vinnan - 01.02.1947, Side 27
frá 1874. Hannes Hafstein, liinn glæsilegi stjórn-
málaleiðtogi, beitti sér fyrir samþykkt svonefnds
heimastjórnarfrumvarps, þar sem gert var ráð
fyrir íslenzkum ráðherra l)úsettum í landinu
sjálfu. Urn áramótin 1902—1903 yrkir Hafstein
snjallt kvæði, sem telja má eins konar stefnuskrá
hans í bundnu máli, jafnframt sem það túlkar
mjög vel framsóknarhug og framtíðarvonir ís-
lenzku þjóðarinnar um þessar mundir. — Kvæð-
ið er á þessa leið:
„Rís heil þú sól, sem enn oss færir ár,
það ár, sem þjóð vor lengi muna skal!
Rís heil, með sigurmark um bjartar brár
og bjarma roðin upp af tímans val.
Þú ljóssins drottning! blessa berg og dal,
þin birta læsi sig um fólksins hug,
til starfa og þroska vek þú hrund og hal,
á horfins tíma nteinum vinn þú bug,
og vektu traust og trú og forna dáð og dug.
Já, vektu traust og dug, því dagur sá,
er dáð skal vinna — hann er kominn nær,
og lánist nú ei loksins rétti að ná
og lokum stríðsins, þá er sigur fjær.
En sigurmörk þú sýnir, röðull skær,
því synir Islands ráða nú þess hag.
Hvort lengi þráðu marki móðir nær
er mörgum lagt í hönd einn ársins dag,
og hví skal efast um, að niðjar noti lag?
Þitt stríð er orðið langt og þungt, vort land!
Nú loks á móðir kost að reisa bú
með sonarstyrk. Hvað gerir því þá grand?
Hví grípa þeir ei tækifærið nú?
Hvort hefur langvinn þrælkun þjakað trú
á þína krafta? Stríðið lamað dug?
Hvort er það þreyta, eða er sökin sú
að sundrung leið og kritur vinni bug
á góðum vilja? Seg, hvað svellur þér í hug?
Þeir menn, sem börðust fremst, með traustri trú,
til takmarks þess sem loks er fært að ná,
þeir eru horfnir heim um glæsta brú
og heiður þeirra einn nú dvelst oss hjá.
En andar þeirra horfa og hlusta á
hvert hjartaslag, sem snertir þeirra starf.
Þeir benda þjóð, að falla nú ei frá ,
né fyrirgera nú svo dýrum arf,
en muna hvað hún var og hvað hún er og þarf.
Þér íslands synir muna megið eitt,
að móðir vor á rétt, sem ei má hrjá.
Hvers einstaks vild ei vega má þar neitt
né vinsemd, óvild, basl né hokurstjá.
Allt slíkt er smátt, en nnkil, helg og há
er hugsjón þjóða: Framtíð ættarlands —
að gaufi ei þrælar gröfum fornum á,
en göfgist niðjar, manni frá til manns,
í fullri frelsislausn, — en viðjum bróðurbands.
s----------------------------------------------N
Nýjársóskir
til Alþýðusambandsins
Alþjóðasamband verkalýðsins hefur sent Al-
þýðusamba7idi íslands sínar beztu lieillaóskir
á nýja árinu. Ennfremur hefur Dolores íbarr-
uri, aðalritari spœnska Kommúnistaflokksins
og varaforseti sþcensku lýðveldisstjórnarinnar
í París sent Alþýðusambandinu heillaóskir sín-
ar á nýja árinu.
V______________________________________________y
Þér Islands göfgu mæður, meyjar, fljóð,
sem mest og tryggast geymduð ljóð og sögn,
sem þakka má að ísland enn á þjóð,
og íslenzkt mál ei fallið er í þögn,
nú glæðið, eflið öll hin beztu mögn,
sem eru til í hjarta þjóðar enn,
svo komi að gagni sérhver ástarögn
til ættarlands, og synir, bræður, menn,
nú fylkizt í þann flokk, að réttur sigri senn.
Kom nýár, kom þú heilt til starfs og stríðs,
og steyp þú öllum myrkravöldum látt!
Ber fram til sigurs réttinn lands og lýðs
og lát hið sanna birtast opinskátt.
Kom, gef þú sljóvum vilja, veikum mátt,
en veit oss fyrst og fremst að skynja rétt.
Svo þor að fylgja réttu og horfa hátt
og hika ei við það mark, sem vel er sett.
Þá loks, með sigri og sæmd, skal strlði löngu létt.
---------------------------------
GUNNAH EKELÖF:
CLAUDE LORRAIN
Húmar í döggvotum skógi,
hljóðnar smalanna klapp,
hjörðin spekist, sem áður
styggðist í hnapp.
Kvöldbleik sólin styðst
fram á geislastaf,
V
strendur eyjanna sokknar
í rökkurhaf.
Hafíð breiðir út faðminn,
stendur snöggvast á önd,
snýr sér í þungum draumi
og leggur vanga að strönd.
VINNAN
19