Vinnan - 01.09.1947, Blaðsíða 3
VINNAN
9. tölublað
September 1947
5. árgangur
Reykjavík
Ritnefnd:
Björn Bjarnason
Helgi Guðlaugsson
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUSAMBAND ÍSLANDS
KARI Eftir G. H. E.
Eg kannast við þig maður margra gerfa,
og rnikið hef eg snilli þína dáð:
að láta ótal svipi sjást, og hverfa,
en sjálfur aldrei verða þeim að bráð.
LE
EFNISYFIRLIT
Þorsteinn Jósepsson: SiglufjörSur, forsíðumynd.
G. H. E.: Leikari, kvœði.
Af alþjóðavettvangi.
Avarp miðstjórnar Alþjóðasambands verkalýðs-
félaga til alls verkalýðs.
Stefán Ogmundsson: Hvað hefur komið fyrir?
B. S.: Vígorð Símonofs, kvœði.
Björn Bjarnason: Miðstjórnarfundur Alþjóðasam-
bands verkalýðsfélaga.
Athyglisverður dómur.
Br. Sigurðsson: Það mœlti mín móðir.
Rannveig Kristjánsd.: Vettvangur vinnandi kvenna
Erik Blomberg: Grafskrift, kvæði.
Minningarorð um Pétur G. Guðmundsson.
Kristinn D. Guðmundsson: Vélstjórafélag Isa-
fjarðar 15 ára.
Vilhelm Ekelund: Lofsöngur, kvœði.
Ólafur Þ. Kristjánsson: Esperantonámskeið.
Vilhelm Ekelund: Haustblámans morgunn, kvœði.
Skák, sambandstíðindi, kaupskýrslur o. fl.
\____________________________________________________)
Því það er vandi að vera hryggur sjálfur,
og vitna samt um gleði annars rnanns,
og ekki síður kátur eins og kálfur
að klekja út á sviði raunum hans.
Að eiga heimsins hylli í sjóði vænum,
og herma ræfilmenna sálarstríð.
Að hafa sjálfur hjartað fullt af bænum,
en hatur tjá, sem bölvar öllum lýð.
Og hollt er segg sem hefur reynt hið verra,
að halda sig um stund sem gæfumann;
og kempu, sem fann kjark sinn aldrei þverra,
að klæðast þeim sem engan sigur vann.
Og laus við sigra og sókn í lífsins stormi
að sýna garp, og fara í sporin hans;
og hafa aldrei heldur banað ormi,
en herma glæp, sem klýfur eðli manns.
Og gaman er að geta kvöl og banni
sem grímu klæðst á bak við leikhústjöld.
Og sökkt til skiptis sínum innra manni
í svik og heiður, kúgun, tign og völd.
Að leika hetju, heigul, undirtyllu,
og hafa aldrei verið neitt af því.
Að týna sér í fórn og frægð og villu
en finna ætíð sjálfan sig á ný.
VINNAN
181