Vinnan - 01.09.1947, Side 15
1
Pétur G. Guðmundsson
MÍNNINGARORÐ
Á fyrstu árum sínum átti íslenzk verkalýðshreyfing
mjög erfitt uppdráttar. En henni vildi það til happs, að
hún átti öfluga og ótrauða forvígismenn og brautryðj-
endur, sem aldrei létu bugast né kvikuðu frá sannfær-
ingu sinni, hverjum brögðum, sem atvinnurekendur
beittu til þess að kæfa verkalýðshreyfinguna í fæðing-
unni og lama hugrekki brautryðjendanna. Einn hinn
merkasti þessara ótrauðu forvígismanna var Pétur G.
Guðmundsson, sem var til moldar borinn þann 19. ágúst
síðastliðinn.
Forystustarf Péturs G. Guðmundssonar í íslenzkri
verkalýðshreyfingu mun seint fullþakkað, og það eitt
mundi nægja til þess að halda nafni hans á lofti fram
eftir öldum. En auk þess var hann maður gagnfróður
um önnur efni en þau, sem snertu verkalýðshreyfing-
una beinlínis. Meðal annars nam hann tungumál tilsagn-
arlaust og varð svo vel að sér, t. d. í sænskri tungu, að
hann samdi kennslubók í sænsku, ásaint sænskum
manni, Gunnari Lejström, og þegar hann lézt, var hann
langt kominn að semja sænsk íslenzka orðabók, en það
er óvenjulegt þrekvirki af sjálfmenntuðum alþýðu-
manni.
Vegna menntunar sinnar, gáfna og mannkosta var
Pétur G. Guðmundsson sjálfkjörinn leiðtogi á fyrstu
og erfiðustu árum verkalýðssamtakanna. Fyrstu kynni
sín af sósíalisma fékk Pétur af norskum hvalveiðimönn-
um á Onundarfirði og Mjóafirði.
Á nýjársdag árið 1900 er stofnað hér í Reykjavík
málfundafélag, sem gaf út handritað blað, sem hét
Vísir, og sá Pétur um blaðið. í þessu blaði eru fyrst'u
umræður um sósíalisma, sem fram hafa farið hér á
landi. Um sama leyti kynntist Pétur verkalýðssamtök-
um í Þýzkalandi af lestri. Átti hann þá m. a. bréfavið-
skipti við hinn þekkta sósíalista og verkalýðsforingja
August Bebel, en Pétur skrifaði þýzku eins og sitt eigið
móðurmál.
Árið 1906 var Bókbindarafélagið stofnað og var Pét-
ur einn af stofnendum þess og fyrsti formaður. Sama
ár hófst útgáfa Alþýðublaðsins og var Pétur fyrsti rit-
stjóri þess. Árið 1911 var Verkamannablaðið stofnað,
en það var gefið út af Dagsbrún og var Pétur ritstjóri
þess. Árið 1907 var Verkamannasamband íslands stofn-
að og var Pétur í stjórn þess. Einnig átti hann sæti í
bæjarstjórn Reykjavíkur um sex ára skeið, eða frá
1910—16. Þá var hann um skeið formaður Dagsbrúnar,
átti sæti í stjórn fulltrúaráðsins og sá um tímaritið
Völund fyrir Iðnaðarmenn. Hann var og einn af stofn-
endum fyrsta byggingarsamvinnufélagsins í Reykjavík
árið 1919 og þýddi bækling um húsaskipun eftir hinn
fræga norska byggingaskipulagsfrömuð Gerlöf, sem
kunnur er hér á landi.
Pétur hefur m. a. skrifað 10 ára starfssögu Sjó-
mannafélagsins, og á þýzku skrifaði hann ágrip af sögu
alþýðusamtakanna á Islandi.
------------------------------------------\
ERIK BLOMBERG:
GRAFSKRIFT
Hér liggur
launþegi sænskur.
Féll á friðartíð.
varnarlaus, vopnlaus,
hæfður ótal
óþekktum kúlum.
•>
Glæpurinn var hungur.
Gleym honum aldrei!
B. S.
\_________________________________________/
VINNAN
193